Prjónaði á öll börnin

Fréttir|13. maí 2020

Börnin á elstu deildinni í leikskólanum á Hvolsvelli fengu gjöf frá leikskólakennaranum.

Verkefnin eru mismunandi á COVID-19 tímanum. Árný Jóna Sigurðardóttir, deildarstjóri á elstu deild í leikskólanum Örk á Hvolsvelli, tók sig til og prjónaði vettlinga handa öllum börnunum á deildinni hennar.

Árný Jóna lýsir því þannig að eftir samkomubann hafi vinnan orðið svolítið skrítin. Hún vann hálfa viku í einu og hún hitti ekki helminginn af samstarfsfólkinu og eins var það með börnin, mörg hafði hún ekki hitt síðan um miðjan mars.

„Ég elska að prjóna og átti ég fullt af lopa í alls konar litum. Ég bjó mér til smá verkefni á þessum skrítnu tímum og það var að prjóna 25 pör af vettlingum, eitt par fyrir hvert barn á deildinni minni. Þann fjórða mái sl. þegar öll börnin fengu að koma í leikskólann beið þeirra pakki. Gleðin var svo mikið að þau voru í vettlingunum inni og máttu ekki vera að því að leika sér í byrjun dags,“ segir Árný Jóna, sem veitti Skólavörðunni leyfi til að birta frásögnina og myndir af börnunum og vettlingunum.