Prjónað gegn einelti í Oddeyrarskóla

Fréttir|29. desember 2025
Húfurnar (2)
Skólavarðan

Starfsfólk og velunnarar Oddeyrarskóla á Akureyri hafa prjónað húfur á hvern einasta fyrstabekking við skólann frá árinu 2016. Skólavarðan spurði Önnu Bergrós Arnarsdóttur, skólastjóra Oddeyrarskóla, út í verkefnið.

Húfurnar, sem á stendur „gegn einelti“, eru liður í forvarnastarfi skólans og eru afhentar nemendum á alþjóðlegum degi gegn einelti ár hvert.

„Hugmyndin kom þegar fulltrúar skólans sóttu ráðstefnu í Noregi fyrir rúmum áratug. Í einni skólaheimsókninni sáum við húfur sem höfðu verið prjónaðar og á stóð „mot mobbing“. Okkur fannst þetta mjög skemmtileg hugmynd og fórum að þreifa fyrir okkur. Þá komumst við að því að kona nokkur að vestan væri þegar búin að teikna upp prjónamunstur að húfunni á íslensku og þá fóru hjólin að snúast,“ segir Anna Bergrós skólastjóri um tilurð verkefnisins.

„Svo er skemmtilegt að segja frá því að sú sem á heiðurinn af munstrinu hefur síðan þá flust til Akureyrar og starfar sem aðstoðarskólastjóri í hverfisleikskólanum og maðurinn hennar vinnur hér í Oddeyrarskóla. Þetta er svo lítill heimur.“

„Húfuprjónið er liður í okkar vinnu hjá Oddeyrarskóla við að vinna gegn einelti. Þær virka sem sífelld áminning fyrir börnin.“

Húfuprjónið sprottið úr grasrótinni

„Upphaflega var textílkennari starfandi hér við skólann sem prjónaði að mestu húfurnar, en þó með aðstoð annarra starfsmanna. Svo þegar hún hætti þurftum við að ákveða hvort við ætluðum að halda verkefninu, sem sprottið var úr grasrótinni, áfram, enda mikið verk,“ útskýrir Anna Bergrós. Fljótlega lá þó fyrir að starfsfólk skólans vildi gjarnan halda verkefninu gangandi og hjálpast að við húfuprjónið.

Það hefur verið raunin allar götur síðan og efniviður í húfurnar er alltaf aðgengilegur starfsfólki á skrifstofu skólans. „Svo hefur það líka verið þannig að foreldrar og velunnarar sem hafa tíma og gaman af þessu hafa komið og sótt sér garn og uppskriftir og tekið þátt.“

Húfurnar jákvæð áminning

„Húfuprjónið er liður í okkar vinnu hjá Oddeyrarskóla við að vinna gegn og vera með forvarnafræðslu gegn einelti,“ segir skólastjórinn. „Við látum börnin alltaf fá húfurnar í kringum árlegan dag eineltis, 8. nóvember, og höfum smá athöfn í kringum afhendinguna með öllum nemendum á yngsta stigi skólans.“

Húfurnar virka svo sem sífelld áminning fyrir börnin og eru góð kveikja að umræðu um einelti, líka heima fyrir, segir Anna Bergrós. „Við stöndum í þeirri trú að með húfunum átti börnin sig betur á hugtakinu einelti og þýðingu þess og ýti undir góðvild í garð hvers annars.“

Gegn Einelti 2025 (2)

Fyrstubekkingar við Oddeyrarskóla fá húfur sínar afhentar á degi eineltis. Mynd: Oddeyrarskóli