PISA í hnotskurn – fjórir opnir fundir

Fréttir|8. febrúar 2017

PISA í hnotskurn – Staða íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði er heiti á fundaröð sem hefur göngu sína þann 9. febrúar og lýkur 2. mars næstkomandi.

Haldnir verða alls fjórir fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Menntamálastofnunar þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2015.

Fundirnir verða haldnir á fimmtudögum kl. 15.00-16.30 í stofu H205 í húsakynnum Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.

Beint streymi er á þessari slóð: http://bit.ly/2mM50ZX

Dagskráin er sem hér segir:

9. febrúar

  • Greining á stöðu lesskilnings
    Sigríður Ólafsdóttir nýdoktor, Baldur Sigurðsson dósent, og Steinunn Torfadóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

16. febrúar

  • Greining á stöðu læsis á stærðfræði
    Freyja Hreinsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

23. febrúar

  • Greining á stöðu læsis á náttúruvísindi
    Auður Pálsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

2. mars

  • Einkenni skóla og nemenda
    Anna Kristín Sigurðardóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
    Almar M. Halldórsson og Ragnar F. Ólafsson, sérfræðingar frá Menntamálastofnun, munu greina frá niðurstöðum PISA-rannsóknarinnar 2015 á hverjum fundi.

Fundunum verður streymt beint á vef.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.


Um PISA
Menntamálastofnun sá um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk vorið 2015. Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs og Menntamálastofnunar um greiningu gagnanna og túlkun niðurstaðanna.

PISA-rannsóknin er lögð fyrir í 72 löndum um heim allan. Könnuð er frammistaða nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrulæsi. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms.