Pattstaða í viðræðum við ríkið

Fréttir|29. janúar 2014

„Við höfum satt að segja ekkert komist áfram í viðræðum við ríkið og það er bara pattstaða,“ sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, en hún var gestur í morgunþætti Bylgjunnar, Í bítinu, í morgun. Aðalheiður fór yfir stöðu samningaviðræðna við ríkið hingað til en kjarsamingur félagsins rennur út nú um mánaðamótin.

Aðalheiður sagði framhaldsskólakennara hafa dregist mjög aftur úr viðmiðunarhópum. Hún segir framhaldsskólakennara bera sig saman við háskólamenntaða starfsmenn hjá ríkinu, enda líkir hópar þegar kemur að menntun og ábyrgð, en munurinn dagvinnulaunum þessara hópa sé um 17%. Bilið á milli framhaldsskólakennara og skyldra hópa hafi breikkað jafnt og þétt frá árinu 2006.

Aðalheiður sagðist vonast til að hægt verði að gera kjarasamninga við eðlilegar aðstæður og ekki þurfi að koma til átaka. Samninganefnd framhaldsskólakennara sé opin fyrir öllum hugmyndum um hvernig megi laga stöðuna.

„Er það virkilega þannig að þeir sem starfa í framhaldsskólum eigi að vera á vinnukonulaunum, hálfdrættingar í launum miðað við sambærilega hópa hjá sama vinnuveitenda. Þetta getur ekki gengið svona til lengdar,“ sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir.

Hægt er að hlusta á viðtalið hér.