Páskakveðja

Fréttir|8. apríl 2020
Pistill

Með hækkandi sól munum við vonandi smám saman auka áhersluna á hið eiginlega hlutverk menntunar í samfélaginu okkar þótt um hríð muni öryggis- og neyðarhlutverk menntakerfisins vera í forgrunni.

Fyrir hönd stjórnar KÍ langar mig að senda félagsmönnum kveðju til að fylgja þeim inn í páskahátíðina. Með kveðjunni fylgja óskir um verðskuldaða hvíld og góðar stundir með ykkar nánustu - og hvatningu um að fylgja ráðum sóttvarnalæknis og sýna ábyrgð og aðgát í samskiptum. Faraldurinn, sem varð okkar verkefni óundirbúið í einu vetfangi, er nú að einhverju leyti á valdi okkar sjálfra. Hann gæti hafa náð hámarki og á næstu vikum gæti hann gengið yfir. Það reynir þó á okkur öll að tryggja að ekki verði bakslag í þeirri baráttu.

Efnahagsleg og samfélagsleg áhrif kórónuveirunnar munu þó vara mun lengur. Hafin er heimskreppa sem gæti varað um nokkra hríð. Grípa þarf til róttækra aðgerða til að halda skaðanum í lágmarki og reyna að stuðla að því að við komum heil og reynslunni ríkari út úr erfiðleikunum.

Heimurinn allur fæst nú við sama verkefnið. Talið er að útbreiðsla COVID-19 muni hafa veruleg neikvæð efnahagsleg áhrif á 170 ríki heims - og er Ísland þar meðtalið. Um helmingur ríkja heims hefur þegar óskað eftir neyðaraðstoð. Jafnvel auðug ríki standa frammi fyrir bráðum vanda. Hæfni þjóða til að takast á við vandann eykst í réttu hlutfalli við styrk innviða og áherslu á velferð. Það eru grunnkerfi samfélaganna sem eru brimbrjóturinn í þessari ágjöf.

Við þurfum þó að muna að öflug menntakerfi, velferðarkerfi og heilbrigðiskerfi eru ekki aðeins neyðarúrræði. Þau eru grundvallarkerfi samfélags sem hefur það að markmiði að stuðla að velferð allra íbúanna. Þau kunna að virka mikilvægust á okkar verstu stundum - en þau eru líka jarðvegurinn sem bestu stundirnar spretta upp úr. Heilbrigðiskerfið snýst ekki um sjúkdóma heldur heilbrigði; velferðarkerfið snýst ekki um fátækt heldur farsæld og menntakerfið snýst ekki um fáfræði heldur visku. 

Með hækkandi sól munum við vonandi smám saman auka áhersluna á hið eiginlega hlutverk menntunar í samfélaginu okkar þótt um hríð muni öryggis- og neyðarhlutverk menntakerfisins vera í forgrunni.

Páskahátíðin er mikilvægasta hátíðin í lífi fjölda fólks um heim allan. Á sama hátt og jólin tákna sigur ljóss á myrkrinu snúast páskarnir um sigur lífsins gagnvart dauðanum. Á stundum sem þessum öðlast slík skilaboð aukið vægi. 

Ég óska félagsmönnum og fjölskyldum þeirra góðra páska og flyt kveðjur þeirra fjölmörgu sem rætt hafa við mig síðustu daga fullir þakklætis vegna góðra kennara og skólastjórnenda sem snerta með einum eða öðrum hætti hverja einustu fjölskyldu í landinu.