Pallborð og fyrirlestrar aðgengileg á vefnum – myndband

Fréttir|12. apríl 2024
Pallborðsumræður með formönnum og fulltrúum aðildarfélaga KÍ

Fjörugar og fróðlegar pallborðsumræður áttu sér stað á ráðstefnu KÍ í Hörpu á þriðjudag. Mælum með áhorfi.

Efnt var til pallborðsumræðna á ráðstefnunni Skóli nútíðar – vegvísir til framtíðar sem Kennarasambandið stóð að og fór fram í Hörpu 9. apríl. Það gerist ekki oft að forystufólk aðildarfélaganna sitji fyrir svörum en sú var raunin í Hörpu. 

Fundargestir vörpuðu fram spurningum í gegnum forritið SLIDO og umræðustjórn var í höndum Berglindar Rósar Magnúsdóttur, prófessors á Menntavísindasviði. 

Á sviðinu sátu fyrir svörum Anton Már Gylfason, formaður FS, Haraldur Freyr Gíslason, formaður FL, Mjöll Matthíasdóttir, formaður FG, Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir, stjórnarkona í FF, Sigurður Sigurjónsson, formaður FSL, og Þorsteinn Sæberg, formaður SÍ. 

Komið er víða við í umræðunum og auðvelt að mæla með áhorfi. 


 

Fyrirlestar að morgni ráðstefnudags

Hlekkur á ráðstefnu