Óverulegar breytingar á kynjahlutföllum innan KÍ

Fréttir|27. mars 2017

Konur eru 8.494, eða 81 prósent, félagsmanna Kennarasamband Íslands og karlar 2.050 eða 19 prósent.

Konur eru 8.494, eða 81 prósent, félagsmanna Kennarasamband Íslands og karlar 2.050 eða 19 prósent. Þetta kemur fram í Kynjabókhaldi KÍ 2017 sem Jafnréttisnefnd KÍ hefur látið taka saman. Jafnréttisnefnd hefur haldið bókhald yfir kynjahlutföll í KÍ, aðildarfélögum, stjórnum og ráðum á vegum kennarasamtakanna. 

Breytingar á kynjahlutföllum eru óverulegar á milli ára. Mest hallar á karla í leikskólafélögunum tveimur; Félagi leikskólakennara (FL) og Félagi stjórnenda leikskólakennara (FSL). Í FL eru 2.167 konur og 72 karlar. Í FSL eru 450 konur og sex karlar. Félag grunnskólakennara skiptist þannig að konur eru 3.953 og karlar 809 talsins. Konur í starfi skólastjórnenda grunnskóla eru 412 og karlar í sömu stöðu 113. Jafnast er hlutfall kynja innan framhaldsskólans og tónlistarskólans. 

Kynjabókhald Jafnréttisnefndar er byggt á tölum úr félagaskrá miðað við febrúar/mars á þessu ári. 

Skýrslan í heild.