Óvæntur stuðningur frá Félagi lífeindafræðinga

Fréttir|15. nóvember 2014

Á fundi kjaradeilusjóðs Félags lífeindafræðinga, sem haldinn var í gærmorgun, var tekin ákvörðun um að styðja tónlistarkennara í yfirstandandi kjarabaráttu með því að veita FT styrk upp á 750.000 krónur. Gyða Hrönn Einarsdóttir, formaður Félags lífeindafræðinga sagði við það tækifæri að á árum áður hafi sitt félag staðið í sömu sporum og tónlistarkennarar nú. Tónlistarkennarar stæðu í löngu og ströngu verkfalli og hafi félagið því tekið ákvörðun um að sýna stuðning í verki.

Í bréfi sem Gyða Hrönn sendi FT í dag segir meðal annars:

„Gangi ykkur vel í baráttunni, ekki láta deigan síga, tónlistarmenntun er ekki minna mikilvæg en önnur menntun, allra síst fyrir sálartetrið.“

„Félag tónlistarskólakennara þakkar Félagi lífeindafræðinga, stjórn kjaradeilusjóðs FL og formanni félagsins, Gyðu Hrönn Einarsdóttur, innilega fyrir þennan óvænta og kærkomna stuðning – við metum framtakið mikils og þann góða hug sem tónlistarkennurum er hér sýndur“ segir Sigrún Grendal, formaður FT, um þessa höfðinglegu gjöf.

Félag lífeindafræðinga er fagstéttarfélag lífeindafræðinga sem hafa löggildingu sem slíkir frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Félagið var stofnað vorið 1967 og er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Þess má geta að Félag lífeindafræðinga er fámennt, telur aðeins um 300 félagsmenn.