Ótrúlega gaman að efla krakka til náms

Fréttir|5. janúar 2023

Kristín Björnsdóttir, umsjónarkennari í Ingunnarskóla, er Félagi í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar. Hún segir frá bestu stund vikunnar, hverju hún vilji breyta og af hverju hún er kennari.

Ég er kennari vegna þess að ...

Það er svo ótrúlega gaman að styðja og efla krakka til náms og árangurs á margvíslegan hátt. Að skapa umhverfi þar sem þau fá tækifæri til að rækta styrkleika sína og blómstra hvert á sinn hátt.

Bestu stundir vikunnar ...

Eru fjölbreyttar og ólíkar milli vikna en oft tengjast þær augnablikum þar sem nemendur gleðjast yfir árangri sínum eða uppgötva eitthvað nýtt og sýna frumkvæði og lausnamiðun í þekkingarleit. Það er líka afskaplega góð tilfinning þegar heildstæð skapandi verkefni heppnast vel í kennslu.

Þessu myndi ég vilja breyta ...

Ég myndi vilja stórefla námsefnisútgáfu þannig að kennarar gætu valið úr fjölbreyttara efni til að nýta í kennslu. Námsefnisútgáfa þarf að vera í takt við tímann og það er úrelt að ætla kennurum að nýta eina tiltekna bók til að kenna námsþátt eða námsgrein hverju sinni. Vefefni og myndbönd sem ætluð eru til kennslu þarf að stórauka. Kennarar eiga að geta valið úr fjölbreyttu efni til að höfða til ólíkra nemenda. Við ættum ekki að þurfa að byggja rafræna kennslu á efni sem einstakir öflugir kennarar hafa búið til heldur þurfa menntamálayfirvöld að setja fjármuni og kraft í verkefnið.

Svo hljóða svör Kristínar Björnsdóttur grunnskólakennara og fær hún bestu þakkir fyrir.

Lesa Skólavörðuna, 2. tbl. 2022