Óskað er eftir framboðum

Fréttir|19. mars 2014

Þessa dagana er leitað að áhugasömum félagsmönnum til að sitja í Samráðsnefnd FSL, en þeir eru tengiliðir við stjórn og jafnframt trúnaðarmenn. Kjósa skal á eftirtöldum svæðum einn aðalmann og einn varamann.

  • Reykjavík
  • Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær og Kjós
  • Suðurnes
  • Suðurland og Vestmannaeyjar
  • Vesturland og austur Barðastrandasýsla
  • Vestfirðir utan austur-Barðastrandasýslu og Strandabyggðar.
  • Norðurland vestra að Fjallabyggð ásamt Strandabyggð.
  • Norðurland eystra frá Fjallabyggð að Bakkafirði.
  • Austurland frá Bakkafirði til Staftárhrepps.

Framboðum skal skila til formanns Framboðsnefndar, Ingibjargar Stefánsdóttur fyrir 25. mars nk. Netfang hennar er ingibjörg@arborg.is

Ath. að fyrir aðalfundi liggur tillaga um að fjölga fulltrúum í Reykjavík og Kraganum. Þar verði í framtíðinni tveir aðalfulltrúar og einn til vara. Ástæðan er að á þessum svæðum eru félagsmenn fleiri en 100. Verði sú tillaga samþykkt á aðalfundi verða þessir viðbótarfulltrúar kjörnir sérstaklega í framhaldi.