Óskað eftir tilnefningum til Orðsporsins 2024

Fréttir|8. janúar 2024

Óskað er eftir tilnefningum til Orðsporsins 2024, hvatningarverðlauna leikskólans, sem afhent eru árlega á Degi leikskólans, 6. febrúar. Frestur til að tilnefna rennur út 22. janúar.

Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi skólastarf eða umbætur og þróun í menntamálum eða í kennsluháttum á leikskólastiginu.

Hægt er að senda inn tilnefningu til Orðsporsins 2024 með því að senda póst á netfangið dagurleikskolans@ki.is. Frestur er til 22. janúar.

Að Orðsporinu standa Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, mennta- og barnamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli.

Þetta verður í ellefta skipti sem hvatningarverðlaunin eru veitt. 

Þessi hafa fengið Orðsporið:

  • 2023 Hafnarfjarðarbær
  • 2022 Leikskólinn Aðalþing
  • 2021 Leikskólastigið
  • 2020 Ekki veitt
  • 2019 Seltjarnarnesbær
  • 2018 Hörgársveit
  • 2017 Framtíðarstarfið
  • 2016 Ásmundur Örnólfsson aðstoðarleikskólastjóri
  • 2015 Kópavogsbær og sveitarfélagið Ölfus
  • 2014 Okkar mál – þróunarverkefni
  • 2013 Súðavíkurhreppur / Kristín Dýrfjörð og Margrét Pála Ólafsdóttir