Óskað eftir orlofshúsum til framleigu
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands óskar eftir sumarhúsum og íbúðum til framleigu fyrir félagsmenn sumarið 2016. Leigutímabil er frá 3. júní til 12. ágúst, eða í tíu vikur. Leitað er eftir eignum á landsbyggðinni og erlendis.
Áhugasamir eru beðnir að senda Orlofssjóði tilboðsbréf á netfangið sjodir@ki.is eigi síðar en 21. desember næstkomandi.
Í tilboðsbréfinu þarf að fylgja lýsing á eigninni, stærð í fermetrum, ástand og byggingarár. Greina þarf frá herbergjaskipan, svo sem fjölda svefnherbergja og hversu margir geta gist í rúmum. Þá þarf að segja frá staðsetningu, hvað fylgir með húsinu og hvernig er nærumhverfið er, til dæmis með tilliti til afþreyingar og þjónustu.
Ljósmyndir af eigninni og umhverfi verða að fylgja með og að sjálfsögðu hugmynd um leiguverð fyrir vikudvöl.