Óskað eftir matsmönnum umsókna
Fréttir|11. mars 2014
Rannís óskar eftir einstaklingum til að meta umsóknir í menntahluta Erasmus+ áætlunar ESB sem er ný styrkjaáætlun um menntun, æskulýðsstarf og íþróttir.
Um er að ræða tímabundin verkefni í tengslum við umsóknarfresti Erasmus+. Senda þarf umsókn ásamt ferilskrá fyrir 17. mars nk. Hægt er skoða auglýsinguna hér og nánari upplýsingar er að finna á erasmusplus.is.