Óska skýringa á breytingum á samræmdum prófum

Fréttir|30. maí 2016

Skólastjórafélag Íslands (SÍ) hefur óskað skýringa Menntamálastofnunar á nokkrum þáttum er lúta að breytingum á samræmdum prófum við lok grunnskóla. Í bréfi SÍ segir að það sé mat félagsins að lítið samráð hafi verið verið haft við hagsmunaaðila um ákvörðunina og enn sem komið er hafi inntak breytinganna ekki fengið mikla kynningu. „Margt virkar jákvætt við fyrstu sýn en mörgum spurningum er ósvarað, bæði um hugmyndafræðina að baki breytingunum og framkvæmda prófanna sjálfra," segir meðal annars í bréfinu. 

Þau atriði sem Skólastjórafélagið óskar frekari skýringa á eru eftirfarandi: 

  • Tímasetning samræmdra pro´fa að vori í 9. bekk í stað hausts í 10. bekk. 
  • Rafræn fyrirlögn samræmdra prófa og hvernig Menntamálastofnun hyggst koma til móts við miðsm
  • Rökstuðningur fyrir þeirri ráðstöfun að komandi að komandi 10. bekkur einn árganga taki samræmt könnunarpróf við lok grunnskóla. 
  • Yfirlit yfir þróun innihalds og verkefna samræmdu prófanna í samræmi við kosti rafræns umhverfis og hvernig prófin muni taka mið af hæfniviðmiðum aðalnámskrár.

Félagsmenn SÍ munu fá bréfið í heild sinni í tölvupósti og væntir stjórn SÍ þess að svör við því hafi borist fyrir næsta fund sem haldinn verður í júní.