Örugg í vinnunni? Kynferðisleg og kynbundin áreitni

Fréttir|1. mars 2016

Efnt verður til hádegisverðarfundar á alþjóðabaráttudegi kvenna, 8. mars, þar sem fjallað verður um kynferðislega og kynbyndna áreitni á vinnustöðum. Að fundinum standa Alþýðusamband Íslands, BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands, Jafnréttisstofa og Jafnréttisráð. 

Dagskrá

  • Kynbundin og kynferðisleg áreitni á vinnustað - Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB.
  • Kynbundið vald og vinnumarkaðurinn - Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.
  • Er kynferðisleg áreitni óhjákvæmileg? - Finnborg Salome Steinþórsdóttir, doktorsnemi í kynjafræði við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Fundarstjóri verður Laufey E. Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands.

Fundurinn er haldinn í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars. Boðið verður upp á hádegisverð og kostar hann 2.500 krónur.

Hvar og hvenær: Hvammur, Grand Hótel Reykjavík kl. 11.45 til 13.00 þriðjudaginn 8. mars.