Örninn fær jólakortastyrk Kennarasambandsins

Kennarasamband Íslands styrkir Minningarsjóðinn Örninn, sorgarúrvinnsluúrræði fyrir börn, um 450 þúsund krónur. Styrkurinn var veittur við hátíðlega jólastund í Vídalínskirkju í dag.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ og Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, veittu Minningarsjóðnum Erninum jólakortastyrk Kennarasambands Íslands við hátíðlega athöfn í Vídalínskirkju í dag, en kirkjan er bakhjarl samtakanna.
Séra Matthildur Bjarnadóttir prestur tók við styrknum fyrir hönd sjóðsins á jólastund Sjálandsskóla í kirkjunni. Allir nemendur skólans voru komnir saman til að hlusta á jólaboðskapinn, kveikja á kveikja á kertum á aðventukransinum og syngja saman með stórsöngkonunni Jóhönnu Guðrúnu.
Um Örninn
Samtökin Örninn vinna með börnum og ungmennum á aldrinum níu til sextán ára sem orðið hafa fyrir sorg og áföllum, misst foreldri eða annan náinn ástvin. Markmið starfsins er að styrkja mikilvæga úrvinnslu barnanna til framtíðar. Unnið er með sorgina á margvíslegan hátt, svo sem með mánaðarlegum samverustundum undir leiðsögn fagfólks, jafningjastuðningi, viðburðum, sköpun og árlegum helgarferðum í Vatnaskóg eða Vindáshlíð.
Þá bjóða samtökin einnig foreldrum og forráðamönnum upp á fræðslu og samtal um ýmis málefni tengd sorgarúrvinnslu og uppeldi barna í sorg. Allir sem koma að verkefninu gefa vinnu sína og sjálfboðaliðahópurinn er fjölbreyttur, með prest, djákna, matráð, sálfræðinga, nema og listamenn um borð, svo dæmi séu nefnd. Hægt er að lesa meira um Örninn á vef samtakanna.
Í stað jólakortasendinga hefur Kennarasambandið um nokkurt skeið látið fé af hendi rakna til stofnana, samtaka og félagasamtaka sem vinna að velferð barna og ungmenna. Hér er hægt að sjá hvaða samtök hafa hlotið jólastyrk KÍ frá því hefðin hófst árið 2008.