Orlofssjóður verður með vakt um páskana

Fréttir|12. apríl 2022

Hægt verður að koma skilaboðum til Orlofssjóðs í gegnum tölvupóst um páskahelgina.

Félagsmenn, sem dvelja í sumarhúsum og íbúðum Orlofssjóðs um páska, eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn á hverjum stað ef eitthvað kemur upp á.

Skrifstofa KÍ verður lokuð yfir páskana. Þurfi félagsmaður nauðsynlega að ná í starfsfólk Orlofssjóðs eða koma skilaboðum til sjóðsins þá getur viðkomandi sent tölvupóst á netfangið orlof@ki.is.

Starfsfólk Orlofssjóðs mun lesa tölvupósta sem hér segir.

  • Fimmtudaginn 14. apríl – milli kl. 11:00-12:00
  • Laugardaginn 16. apríl – milli kl. 11:00-12:00
  • Mánudaginn 18. apríl – milli kl. 11:00-12:00

Gleðilega páska!