Orlofssjóður opnar fyrir vetrarbókanir

Fréttir|14. september 2023

Opnað verður fyrir vetrarbókanir klukkan fimm síðdegis miðvikudaginn 20. september næstkomandi. Við opnum fyrir bókanir á öllum eignum Orlofssjóðs og nokkrum leigueignum og nær tímabilið frá 11. janúar 2024 til 6. júní 2024.

Margir hafa beðið eftir að opnað verði fyrir bókanir næstu annar svo hægt sé að hafa skipulagið á hreinu fyrir allan veturinn. Við höfum þó haldið okkur við að hafa þessa opnun eftir miðjan september svo að sem flestir séu komnir aftur í hversdagsrútínuna og hafi yfirsýn yfir hvert skal stefna í vetrarfríi, páskafríi og lengdum helgum.

Eignasafn Orlofssjóðs dreifist um landið allt og því er úr mörgum góðum kostum að velja til að fara og njóta vetrarins. Flestar eru eignirnar á Flúðum, í Reykjavík og á Akureyri, sem eiga það allar sameiginlegt að vera mjög vinsælar og er nýtingin á ársgrundvelli best á einmitt þessum þremur svæðum.

Verðið helst óbreytt frá síðasta ári sem ætti að tryggja félögum KÍ leið til að ferðast um eigið land á hagkvæman hátt. Punktar eru dregnir frá um helgar um allt land en ekki á virkum dögum.

Við vonum að veturinn verði ánægjulegur og að félagar njóti dvalarinnar í eignum félagsins.

Að lokum er minnt á netfang Orlofssjóðs, orlof@ki.is ef einhverjar spurningar vakna.