Orlofssjóður opnar fyrir bókanir í Vörðuleiti

Fréttir|3. febrúar 2020

Hægt verður að bóka nýjar íbúðir Orlofssjóðs KÍ í Vörðuleiti frá og með klukkan þrjú í dag.

Orlofssjóður Kennarasambands Íslands opnar fyrir bókanir í Vörðuleiti klukkan 15:00 í dag. Vörðuleiti er fjölbýlishús sem sjóðurinn festi kaup á síðla síðasta árs. 

Í Vörðuleiti eru 2 þriggja herbergja íbúðir, 7 tveggja herbergja íbúðir og eitt stúdíó. 

Húsið er glænýtt og íbúðirnar hinar glæsilegustu.

Nánari upplýsingar er að finna á Orlofsvefnum.