Orlofssjóður og COVID-19

Afbókunarreglur eiga ekki við eftir 19. apríl 2021.
Uppfært: Afbókunarreglur eiga ekki við eftir 19. apríl 2021. Almennar afbókunarreglur gilda frá og með 19. apríl 2021.
Orlofssjóður KÍ (OKÍ) vill koma því á framfæri að vilji félagsmenn afbóka orlofseignir vegna þess sem ástands sem ríkir vegna COVID-19 þá er það í góðu lagi. Skilyrði er þó að ósk um afbókun berist skriflega á netfangið orlof@ki.is áður en leiga hefst.
Hyggist félagsmaður afbóka helgardvöl í orlofshúsi þarf hann að senda skriflega orðsendingu þess efnis, á orlof@ki.is, eigi síðar en klukkan 15 á föstudegi fyrir bókaða helgi.
Hafa skal í huga að afbókun sem berst eftir klukkan 16:00 mánudaga til fimmtudaga, og eða eftir klukkan 15 á föstudegi, telst afbókun frá og með næsta virka degi.
Athygli félagsmanna er vakin á því að það er með öllu óheimilt að nota orlofshús Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands sem stað til að dvelja á í sóttkví. Einnig er með öllu óheimilt að nota orlofshúsin fyrir einangrun.
Orlofssjóður vill taka fram að ef sú staða kemur upp að ef einstaklingur með virkt Covid smit hefur dvalið í orlofshúsi KÍ þá er fyrirséð að loka þurfi orlofshúsinu/-íbúð í a.m.k. 5-7 daga. Ef slíkt gerist geti Orlofssjóður ekki ábyrgst að geta útvegað annað orlofshúsnæði í staðinn og mun þá endurgreiða næsta leigutaka leiguna að fullu. Ekki verður um frekari bætur að ræða af hálfu Orlofssjóðs.
Hvað segja reglur OKÍ?
Tilkynna skal allar breytingar og afbókanir skriflega svo fljótt sem auðið er til Orlofssjóðs, netfang: orlof@ki.is. Ath.: Þó breyting sé í upphafi tilkynnt símleiðis, verður skrifleg beiðni að fylgja í kjölfarið. Leiga er aldrei endurgreidd ef tilkynning berst eftir að leigutímabil hefst.