Orlofssjóður með vakt um páskana
Fréttir|30. mars 2021

Hægt verður að koma skilaboðum til Orlofssjóðs í gegnum tölvupóst um páskahelgina.
Félagsmenn, sem dvelja í sumarhúsum og íbúðum Orlofssjóðs um páska, eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn á hverjum stað ef eitthvað kemur upp á.
Skrifstofa KÍ verður lokuð yfir páskana. Þurfi félagsmaður nauðsynlega að ná í starfsfólk Orlofssjóðs eða koma skilaboðum til sjóðsins þá getur viðkomandi sent tölvupóst á netfangið orlof@ki.is.
Starsfólk Orlofssjóðs mun lesa tölvupósta sem hér segir.
- Fimmtudaginn 1. apríl – milli kl. 11:00-12:00
- Laugardaginn 3. apríl – milli kl. 11:00-12:00
- Mánudaginn 5. apríl – milli kl. 11:00-12:00
Gleðilega páska!