Orlofssjóður kynnir úthlutun næsta sumar

Fréttir|10. febrúar 2023
Heiðarbyggð á Flúðum

Félagsmenn KÍ hafa aðgang að miklum fjölda sumarhúsa og íbúða um land allt og á Orlofssjóður KÍ yfir 60 eignir nú orðið. Stjórn Orlofssjóðs ákvað að hækka verð ekki á milli ára sem er hægt að líta á sem lækkun í ljósi verðbólgunnar í landinu.

Sumarið 2023 verður með hefðbundnu sniði og hafa félagar tækifæri til að leigja eignir sjóðsins ásamt fjölda eigna sem sjóðurinn tekur á leigu og endurleigir félagsfólki. Eignirnar dreifast um allt land og eru jafnt í þéttbýliskjörnum og ýmsum sumarhúsabyggðum. Stærsti kjarninn er á Flúðum þar sem 21 sumarhús verða í boði í sumar og svo eru 17 eignir á Akureyri og nágrenni.

Hér að neðan er fyrirkomulag sumarbókana kynnt. Annars vegar er um vikuleigu að ræða og hins vegar dagsleigur (Flakkarar) sem er leiga í tvær til sjö nætur.

Vikuleiga – fyrirkomulag

Við úthlutun vikuleigu verður horft til réttinda félagsmanna, þ.e. punktaeignar og úthlutað samkvæmt henni. Vert er að taka fram að það breytir engu hvenær á opnunartímanum umsókn berst, hún mun raðast samkvæmt orlofsrétti (punktaeign) félagsmannsins.

Í ljósi mikillar aðsóknar félagsmanna í orlofshús KÍ verður sú breyting gerð á úthlutun að þeir félagsmenn sem fengu vikuúthlutun sumar 2022 verða ekki í forgangi sumarið 2023. Þeir öðlast aftur forgang sumarið 2024. Sama er uppá teningunum í ár að þeir sem fá úthlutun fá ekki forganga 2024.

Þetta er gert til að fleiri félagsmenn eigi möguleika á að fá vikuúthlutun orlofseigna. Þessi breyting kemur ekki til með að hafa áhrif á bókanir dagsleiga.

Eins og áður geta félagsmenn í FKE sem hafa látið af störfum ekki tekið þátt í vikuúthlutun en þeir geta bókað dagsleigur samkvæmt þeim úthlutunarreglum sem gilda um þær.

Hvernig er sótt um vikuleigu?

Félagsmaður getur sótt um fleiri en eina eign í vikuleigu. Góður tími gefst til að skoða og setja upp óskalista.

  • 21. febrúar klukkan 12:00 á hádegi – opnað fyrir umsóknir um vikuleigur
  • 14. mars klukkan 11:59 á hádegi – lokað fyrir umsóknir um vikuleigur

Á ofangreindu tímabili getur félagsmaður skoðað þær eignir sem eru í boði í vikuleigu og sett upp sinn óskalista. Að hámarki er hægt að velja sex eignir.

Þegar félagsmaður hefur sett upp sinn óskalista þá sendir hann inn umsókn og hún verður virk í bókunarkerfinu Frímanni.

Þriðjudaginn 14. mars fer orlofskerfið yfir allar umsóknir sem bárust á tímabilinu og úthlutar í samræmi við punktaréttindi félagsmanna. Sama dag fær félagsmaðurinn tölvupóst þar sem honum er tilkynnt hvort og þá hvaða eign af sínum óskalista hann hefur fengið úthlutaða. Félagsmenn sem ekki fá úthlutun verða látnir vita í tölvupósti. Greiðsla þarf að hafa borist í síðasta lagi fyrir kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 20. mars 2023.

Athugið: Ef félagsmaður vill ekki þá eign sem honum var úthlutað, getur félagsmaður valið að hætta við og/eða sleppt því að greiða og fellur þá umsókn niður. Þær umsóknir sem ekki eru greiddar fyrir tilsettan tíma verða afbókaðar og fara í dagsleigur.

Dagsleigur – fyrstur kemur, fyrstur fær

Hugtakið dagsleigur er notað yfir leigu á bilinu tvær til sjö nætur. Opnað verður fyrir þær bókanir mánudaginn 20.mars klukkan 18:00.

Bókunarfyrirkomulagið er einfalt; fyrstur kemur, fyrstur fær samkvæmt eftirfarandi;

  • Mánudagur 20. mars kl. 18:00–félagar sem eiga 300 punkta eða fleiri
  • Þriðjudagur 21. mars kl.18:00 – félagsmenn sem eiga 100 punkta eða fleiri
  • Miðvikudagur 22. mars kl.18:00 – félagsmenn sem eiga 1 punkt eða fleiri
  • Fimmtudagur 23. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eru með 0 punkta eða fleiri ásamt félögum FKE sem eiga punkta.

Raðhúsin á Bifröst í Borgarfirði eru meðal nýlegra eigna Orlofssjóðs. Alla upplýsingar er að finna á Orlofsvefnum. Margt er hægt að gera í nánasta umhverfi.