Orlofssjóður KÍ gerir könnun meðal félagsfólks
Fréttir|17. febrúar 2026

Félagsfólk er hvatt til að taka þátt í nýrri viðhorfskönnun Orlofssjóðs KÍ. Hægt er að svara spurningum til 28. febrúar.
Orlofssjóður KÍ hefur sett í loftið könnun þar sem spurt er um viðhorf félagsfólks KÍ til ýmissa þátt í starfsemi og þjónustu sjóðsins. Endilega takið þátt, það tekur ekki meira en fimm mínútur að svara.
Markmið könnunarinnar er að draga fram hugmyndir félagsfólks um sjóðinn, fá fram viðhorf til þess framboðs sem er í boði, reynslu af þjónustu og hugmyndir um hvernig sjóðurinn geti þróast til framtíðar. Niðurstöðurnar verða nýttar í stefnumótunarvinnu Orlofssjóðs fyrir komandi þing KÍ, sem haldið verður í apríl.
Einn heppinn þátttakandi verður dreginn út og fær gjafabréf frá Icelandair að verðmæti 30 þúsund krónur.