Orlofssjóður kaupir níu íbúðir

Fréttir|11. júní 2021

Bifröst verður nýr kjarni í eigu Orlofssjóðs og við bætist íbúð á Akureyri.

Átta raðhúsaíbúðir á Bifröst í Borgarfirði hafa bæst við eignasafn Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands. Íbúðirnar standa við Víðihraun sem er gata efst í byggðinni og næst gígnum Grábrók. Útsýni frá íbúðunum er stórkostlegt yfir Borgarfjörðinn. Allar íbúðirnar eru 45 fermetrar að stærð, tveggja herbergja.

Með þessum kaupum er Orlofssjóður að verða við áherslum félagsmanna að auka úrval orlofseigna á Vesturlandi. Íbúðirnar fara í útleigu í kringum næstu mánaðamót og verður það nánar auglýst síðar.

Einnig hefur Orlofssjóður fest þriðju íbúðina í Hafnarstræti 81 á Akureyri. Sú íbúð er þegar komin í útleigu til félagsmanna.