Orlofskort

Fréttir|21. maí 2021

Á vef Kennarasambands Íslands má nú finna gagnvirkt kort þar sem öll orlofshús eru aðgengileg.

Á vef KÍ er nýtt, gagnvirkt kort, þar sem öll orlofshús, bæði í eigu Orlofssjóðs KÍ og þau hús sem eru í sumarleigu, eru aðgengileg. Hægt er að velja landssvæði eða grisja eftir öðrum óskum og standa vonir til þess að félagsmenn eigi auðveldar með að sjá allt það sem er í boði. Þegar búið er að velja orlofseign þá færist viðkomandi yfir á Orlofsvef þar sem gengið er frá bókun.

 

Orlofskort