Orlofshús KÍ um páskana
Fréttir|2. apríl 2020

Félagsmenn eru hvattir til að fara að tilmælum yfirvalda og halda sig heima um páskana.
Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn sína til að fara að tilmælum og viðvörunum yfirvalda um að halda sig heima um páskana, halda ferðalögum í lágmarki og hópast ekki inn á orlofssvæði.
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands mun endurgreiða að fullu þeim sem afbóka orlofshús OKÍ um páskana og munu félagsmenn halda óbreyttri punktastöðu. Afbókanir skulu berast skriflega á netfangið orlof@ki.is, í síðasta lagi á hádegi upphafsdags leigu.