Orðið á skólagöngunum

Skólavarðan spurði trúnaðarmenn út í viðhorf til kjarasamninga, væntingar og helstu áhyggjuefni félagsfólks á vel sóttri trúnaðarmannafræðslu KÍ.
Vel yfir 200 trúnaðarmenn sóttu árlega fræðslu Kennarasambandsins 16.október 2025, ýmist á Hótel Reykjavík Natura eða í streymi. Þar hlýddu trúnaðarmenn á erindi lögfræðings, þjónustu- og jafnréttisfulltrúa, formanns- og varaformanns KÍ og sköpuðust virkar samræður meðal trúnaðarmanna sem svöruðu könnunum, leystu raunhæf verkefni og lögðu spurningar fyrir fyrirlesara.
Skólavarðan nýtti tækifærið og tók nokkra trúnaðarmenn tali um hvað brennur helst á þeirra félagsfólki þessa dagana, hvernig nýlegir kjarasamningar leggjast í það, hvaða breytingar trúnaðarmenn vilja sjá og fleira spennandi.
Kjarasamningar alltaf slagur um lágmarkslaun

Nafn: Jóhann Björn Ævarsson
Aðildarfélag: FT
Skóli: Tónlistarskóli Eyjafjarðar, Akureyri
Trúnaðarmaður í samtals 10-12 ár
Hvað finnst þér helst brenna á þér og þínu félagsfólki þessa dagana?
Það er mjög misjafnt en Tónlistarskóli Eyjafjarðar er lítill, ljúfur skóli og þar ganga hlutirnir smurt og vel fyrir sig. Ég verð líka að játa að ég er að setja mig inn í trúnaðarstarfið aftur eftir hlé þessa dagana.
Það sem kannski brennur mest á mér er viðhorf gagnvart kennurum, sem speglast e.t.v. hvað skýrast í orðum ráðherra Framsóknarflokksins á þingi núna um daginn, þar sem hún stakk upp á því að við fengjum bara ellilífeyrisþega til að kenna börnum íslensku. Ég veit ekki hvort þetta var sagt í gríni eða hvort manneskjan er virkilega svona skammsýn, því að þetta er aðför að lögvernduðu starfsheiti. Og ég skil heldur ekkert í því af hverju forysta KÍ er ekki komin með rauðu flöggin á loft og farin að öskra út af þessu.
Síðustu kjarasamningar, hvernig leggjast þeir í þig?
Kjarasamningar eru alltaf slagur um lágmarkslaun og ber að meðhöndla sem slíka. Mér finnst vont að geta ekki samið við minn næsta yfirmann um launin mín prívat og persónulega út frá þeim kjarasamningi sem er gildandi, en við eigum ekki það kerfi hér. Ég veit alveg hvers virði ég er.
Hvaða breytingar vonastu eftir að séu í aðsigi?
Ef ég mætti ráða, þá myndi ég vilja að Íslendingar færu að ala börnin sín upp og gæfu kennurum svigrúm til þess að kenna og hentu ekki endalaust uppeldislegum vandamálum, sem þau oftar en ekki eru ófær um að sinna, yfir á skólann með hávaða og látum.
Af hverju valdir þú kennarastarfið?
Ég er ekki kennari, ég er leiðbeinandi. Ég ætlaði mér að verða hljóðfæraleikari á sínum tíma en það eru bara mjög fá sæti fyrir mitt hljóðfæri hér á Íslandi. Ég get alveg sagt það með reisn að ég tapaði þeim slag fyrir góðu fólki. Þá var ég búinn að verja dálítið löngum tíma í menntun sem nýtist svo í þetta starf. Þannig að það lá beinast við.
Slysaðist í kennslufræðin

Nafn: Ragnar Már Róbertsson
Aðildarfélag: FL
Skóli: Leikskólinn Laugasól, Reykjavík
Trúnaðarmaður í um 3 ár
Hvað finnst þér helst brenna á þínu félagsfólki þessa dagana?
Það er innleiðing styttingar vinnuvikunnar og allar breyturnar sem henni fylgja. Ég held þó að málið skýrist með Reykjavíkur leiðinni og verði gegnsærra, svo ég er mjög fylgjandi henni. Svo er undirbúningstíminn eitt af stóru málunum. Félagsfólk er að velta fyrir sér hvernig hann virkar og hvað verður um hann, til dæmis ef það nær aldrei að nýta hann allan og hann safnast og safnast upp.
Síðustu kjarasamningar, hvernig leggjast þeir í þig?
Almennt er ég mjög ánægður með nýja kjarasamninginn.
Hvaða breytingar vonastu eftir að séu í aðsigi?
Eins og ég sagði er ég mjög hlynntur Reykjavíkurleiðinni og held að þetta sé í raun bara framtíðin, að allir hætti klukkan tvö á föstudegi, samfélagið líka. Ég sé ekki hindranir í þessu og held að þetta verði þannig útfært að úrræðið geti nýst öllum. Ég bind miklar vonir við það.
Af hverju valdir þú kennarastarfið?
Á sínum tíma þá slysaðist maður inn í þetta, vildi prófa eitthvað nýtt. Og eins og svo margir af þeim sem detta inn á þennan vettvang, varð ég heillaður og ákvað að mennta mig í þessum fræðum. Starfið er bara svo frábært og gefandi og skemmtilegt. Það hljómar klisjulega, en það er það. Það er einhvern veginn alltaf gaman að mæta í vinnuna og hafa áhrif.
Of mörg börn í of litlu rými í of langan tíma

Nafn: Aðalheiður Hreiðarsdóttir
Aðildarfélag: FSL
Skóli: Leikskólinn Naustatjörn, Akureyri
Trúnaðarmaður í um 2 ár fyrir FSL, áður fyrir FL
Hvað finnst þér helst brenna á þínu félagsfólki þessa dagana?
Of mikill fjöldi barna á deild í hverjum skóla. Mannekla, veikindi og önnur fjarvera starfsfólks. Vinnustyttingin, að ná að dekka það seinni partinn. Það er svona það sem brennur mest á fólki.
Síðustu kjarasamningar, hvernig leggjast þeir í þitt fólk?
Ég held að þeir séu bara almennt að fara vel í fólk og það er spennt að vita hvað kemur út úr næstu skrefum, svo sem varðandi starfs lýsingarnar og það. Ég held að fólk sé yfir höfuð bara ánægt með síðustu samninga og samstöðuna sem þar myndaðist.
Hvaða breytingar vonastu eftir að séu í aðsigi?
Alveg klárlega fækkun barna á deild, númer eitt, tvö og þrjú. Og styttri viðverutími, sérstaklega hjá yngstu börnunum en þau eru oft lengst hjá okkur yfir daginn.
Ég er búin að starfa í leikskólanum í 36 ár og þetta hefur verið baráttumál í gegnum þau öll, styttri viðvera, færri börn, fleiri kennarar og meira rými. Það er auðvitað of lítið rými, og þegar of mörg börn eru saman í of litlu rými í of langan tíma þá myndast árekstrar á milli barnanna. Þau bara ráða ekki við bæði þennan hávaða og þennan fjölda.
Af hverju valdir þú kennarastarfið, og af hverju svo stjórnendastarfið?
Frá því að ég byrjaði að passa börn um 12 ára aldur hefur starfið heillað mig. Strax í grunnskóla var ég ákveðin í því hvað ég ætlaði að gera.
Það var svo eiginlega bara röð tilviljana sem leiddi mig í stjórnunarstarfið. Ég til dæmis sótti um vinnu sem aðstoðarskólastjóri í leikskóla úti á landi en enginn sótti svo um skólastjórastöðuna. Eftir að hún var auglýst tvisvar endaði ég á að taka hlutverkið að mér og hef svo haldið áfram í stjórnunarstörfum.
Meiri stuðningur við nýliða á óskalistanum

Nafn: Kolbrún Guðmundsdóttir
Aðildarfélag: FG
Skóli: Sunnulækjarskóli, Selfossi
Trúnaðarmaður í um 5 ár
Hvað finnst þér helst brenna á þínu félagsfólki þessa dagana?
Kennaraskortur er stórt vandamál sem þýðir að mikil fjölgun hefur verið á ófaglærðum sem sinna kennslu. Það er mikil umræða um starfsaðstæður í skólum, úrræðaleysi í flóknum nemendamálum eins og t.d. hvað varðar ofbeldi og nú síðast stafrænt ofbeldi. Svo er álag í starfi einnig mikið rætt.
Ég er formaður Kennarafélags Suðurlands og í stjórn og skólamálanefnd FG og hef raunar lengi sinnt trúnaðarstörfum fyrir FG, eða síðan 2010 og verð að segja að það var virkilega áhrifaríkt að fylgjast með samstöðunni í síðustu kjarabaráttu. Ég er stolt af kennurum.
Síðustu kjarasamningar, hvernig leggjast þeir í þitt fólk?
Vel. Það er búið að halda vel utan um verkefnið en við erum náttúrulega alls ekki búin – raunar hvergi nærri búin – en fólk er ánægt með þau skref sem tekin hafa verið.
Hvaða breytingar vonastu eftir að séu í aðsigi?
Ég myndi vilja sjá töluvert meiri stuðning við nýliða í kennslu, miklu meiri eftirfylgd og handleiðslu, eða stuðning inni á gólfi í skólunum. Ekki bara leiðsagnarkennara sem sinna nemum og nýliðum, heldur leiðsagnarkennara sem veita leiðsögn og stuðning heilt yfir skólann.
Af hverju valdir þú kennarastarfið?
Það er bara þetta tækifæri, að fá að vera með flottu fólki og börnum og ungmennum alla daga og hafa möguleika til þess að hafa áhrif og þróast í starfi allt mitt líf.
Staðráðin í að verða ekki kennari

Nafn: Þórunn Steindórsdóttir
Aðildarfélag: FF
Skóli: Menntaskólinn við Sund, Reykjavík
Trúnaðarmaður í rúmlega 6 ár við framhaldsskóla, áður við grunnskóla
Hvað finnst þér helst brenna á þínu félagsfólki þessa dagana?
Það brennur rosalega mikið á þeim núna, sérstaklega hollustu og öryggishættir, því við erum að glíma við óheilnæmt húsnæði, svo sem vegna myglu í skólahúsnæðinu. Svo er það vinnutími, vinnuskýrslur, kennsluskylda og slík formsatriði.
Síðustu kjarasamningar, hvernig leggjast þeir í þitt fólk?
Í mínum skóla höfum við til dæmis þegar stofnað okkar starfsþróunarteymi og við höfum verið með hellings endurmenntun eða starfsþróun innan skólaársins, þannig að nýja kjarasamningsákvæðið um að nýta 16 klukkustundir á starfstíma skóla í starfsþróun breytir til dæmis ekki rosalega miklu hjá okkur. En okkar fólk var bara mjög sátt við að loksins væri tekið tillit til þess sem við vorum búin að vera að gera.
En er þetta ekki bara alltaf eins með alla kjarasamninga, að fólki finnst það alltaf fá of lítið?
Hvaða breytingar vonastu eftir að séu í aðsigi?
Við finnum verulega fyrir því að nemendur eru ekki eins vel undirbúnir undir framhaldsskóla eins og þeir hafa verið, til dæmis hvað varðar lestur, lesskilning og orðaforða. Þannig að það er búið að vera mikið í umræðunni á kaffistofunni að það sé þörf á einhvers konar endurskoðun á náminu og jafnvel bara skólakerfinu í heild sinni.
Af hverju valdir þú kennarastarfið?
Það valdi mig. Ég er félagsfræðingur og fór að kenna sem leiðbeinandi einn vetur þegar ég var að klára BA verkefnið mitt. Þegar ég kom undan þeim vetri var ég staðráðin í að verða aldrei kennari og vann síðan sem félagsfræðingur í tæp fimm ár. Þá fann ég bara að mig vantaði meira fólk í kringum mig, meiri fjölbreytileika í mannlegum samskiptum og slíkt. Ég ákvað þá að mig langaði að fara að kenna félagsfræði og tók kennsluréttindin.
Ég endaði svo á að kenna í 10 ár við grunnskóla áður en ég komst að við framhaldsskóla, í núverandi stöðuna mína sem ég er rosalega ánægð í.
