Orðagjálfur um samráð
„Hvernig bætum við menntun barna okkar?“ var yfirskrift fjölmargra funda sem Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra hélt síðasta haust til að kynna hvítbók sína um umbætur í menntamálum. Samkvæmt henni skal leggja áherslu á þrennt: að bæta læsi, breyta iðn- og verkmenntun og endurskipuleggja námstíma og stytta til stúdentsprófs. Í framhaldinu voru stofnaðir verkefnahópar ráðuneytisins til að vinna að þessum markmiðum og eiga þeir að kynna aðgerðaráætlanir sínar seinni partinn í þessum mánuði.
Kennarasamband Íslands fékk ekki neina fulltrúa í hópunum og ekki var orðið við óskum þess þar um heldur handvaldi ráðuneytið einstaklinga í hópana. Eina samráðið sem sem boðið var upp á var að KÍ kæmi sér upp sínum eigin rýnihópum um hvert þessara efna og skilaði inn álitsgerðum um þau sem samtökin gerðu í byrjun desember. Um eiginlegt samráð hefur ekki verið að ræða og kennarasamtökin lítil áhrif haft á málin.
Þetta vinnulag er þvert á það sem núverandi ríkisstjórn boðaði í stefnuyfirlýsingu sinni 22. maí 2013. Þar segir að ríkisstjórnin hyggist leggja áherslu á samstarf við hagsmunaaðila í menntamálum um þróun menntakerfisins og aukin gæði menntunar og að horft verði til 10 punkta samkomulagsins frá 2006 um fyrirmynd samstarfsins. Það samkomulag gerðu KÍ og þáverandi menntamálaráðherra um umbætur í menntamálum um sveigjanlegra skólakerfi á grundvelli heildarendurskoðunar á námi og breyttrar námskipunar skólastiganna. Afrakstur þeirrar vinnu sem mjög margir komu að varð síðan grundvöllur að nýjum lögum um kennaramenntun og lögum um öll skólastigin sem alþingi samþykkti árið 2008 sem voru útfærð í nýjum aðalnámskrám árið 2011. Alþingi áréttaði mikilvægi þess þegar það hafði lagafrumvarpið um framhaldsskólann til meðferðar að gildi náms til stúdentsprófs yrði ekki skert heldur væri tilgangurinn fyrst og fremst að styrkja stoðir þess sem undirbúningur fyrir nám á háskólastigi og tryggja að gott samræmi væri í uppbyggingu stúdentsprófsins og tengslum við önnur skólastig.
Óneitanlega fellst í því mikil þversögn í því að annars vegar taki menntamálaráðherra miðstýrða ákvörðun fyrir alla framhaldsskóla um styttingu náms og hins vegar þær áherslu sem aðalnámskrá leggur á frelsi skóla til að móta sínar eigin áherslur varðandi nám, uppbyggingu þess og innihald. Það á þá líklega að ganga út frá því eftir allt saman að allir nemendur séu eins.
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar um samráð og samvinnu í menntamálum reyndist þegar upp var staðið innantómt orðagjálfur. Vinnulag menntamálaráðherra bendir til þess að „menntun barna okkar“ verði helst bætt ef sérfræðingunum um skólastarfið – kennurunum sjálfum – verði haldið víðs fjarri. Þetta gengur þvert á þær hugmyndir sem kynntar hafa verið um menntakerfi sem skara fram úr og sem svo mjög er hampað í hvítbókinni. Atriði sem gjarnan eru nefnd eru t.d. virðing fyrir kennarastarfinu, jafnrétti til náms og samvinna við kennara um að endurskipuleggja menntun og bæta kennslu.
Mjög skökku skýtur við að á sama tíma og kennarasamtökunum er markvisst haldið frá raunverulegu samstarfi um skólaþróun, vinna þau að nýju vinnumati fyrir kennarastarfið. Á sama tíma ákveður menntamálaráðherra að stytta eigi námstíma til stúdentsprófs og skerða innihald náms á framhaldsskólastigi með tilheyrandi breytingum á þeim námskrám sem skólarnir hafa verið að móta. Þetta er ekki til þess fallið að efla traust á leiðsögn stjórnvalda í menntamálunum.
Íslenska skólakerfið má auðvitað bæta og nauðsynlegt er að setja nemendum háleit markmið og gera þá hæfa til að takast á við flókin og krefjandi verkefni. Íslenska skólakerfið verður ekki bætt með því að skerða nám nemenda á framhaldsskólastigi. Okkur ber að líta til eigin menningar og sögu og leita lausna út frá okkar aðstæðum og í samstarfi við þá sem best þekkja skólakerfið en kollvarpa því ekki með sparnaðarsjónarmiðin ein að leiðarljósi.
Anna María Gunnarsdóttir,
sérfræðingur hjá Félagi framhaldsskólakennara.