Orð eru til alls fyrst og meira til

Fréttir|17. febrúar 2016

Maríanna Friðjónsdóttir skrifar

Væri ekki yndislegt að gúgla orðið KENNARI og/eða orðið SKEMMTILEGUR og fá strax á fyrstu síðu niðurstaðnanna samhengið skemmtilegur kennari? Eða skemmtilegur skóli. Eitthvað sem tengir saman kennara, nám og menntun á jákvæðu nótunum. Það væri svo sannarlega góð upplifun, og með markvissri notkun orða og orðasambanda í tjáningu kennara á netinu er hún raunhæfur möguleiki.

Kennarasamband Íslands, kennarasamtök, skólar og einstakir kennarar reka samfélagsmiðla þar sem hægt er að skapa og deila innihaldi, og taka þátt í tengslaneti kennara á ýmsum nótum. Á samfélagsmiðlunum geta kennarar í sameiningu unnið markvisst að því að setja jákvæð orð og upplifun og kennara í sama flokk, með því að gjörnýta í þessum tilgangi innihald sem kennarar framleiða á öllum sínum miðlum. Með samhentu átaki getur þessi 10 þúsund manna her framleitt innihald sem ræður ferðinni í umfjöllun um kennslumál á Íslandi og starf kennarans.

Til að ná tengslum við markhópinn, aðra kennara, nemendur, ráðamenn, foreldra og svo framvegis, þarf hvorki að fjárfesta í prentsmiðju né dýrum útsendingarbúnaði. Myndir, texti og myndbönd sem dreift er á samfélagsmiðlunum er allt boðskapur sem hefur eitt sameiginlegt markmið, og kennarar hafa í sviphendingu gagnvirkan aðgang að meirihluta Íslendinga í gegnum netið og samfélagsmiðlana.

10 þúsund manna herinn getur einungis náð árangri með samstilltu átaki þar sem dregnar eru skýrar línur og markmið. Það er hlutverk Kennarasambandsins en aðildarfélög þurfa að koma að undirbúningi og framkvæmd. Meðal þess sem þarf í byrjun er að koma upp sameiginlegum verkfærum, þ.m.t. námskeiðum, samfélagsstefnu og framleiðsluáætlun, til að einfalda framkvæmdina og fá sem mest út úr hverri mínútu sem lögð er í verkið.

Hér verður drepið á nokkrum atriðum sem hafa þarf í huga þegar lagt er upp í þessa ferð. Hún verður væntanlega bæði löng og ströng en ákaflega áhugaverð og allir geta tekið þátt og lagt í púkkið.

Innihaldsframleiðslan þarf að vera bæði fræðandi og skemmtileg („news you can use“). Það er ekkert samhengi á milli þess að vera upplýsandi, taka hlutina alvarlega og framleiða gæðainnihald og þess að vera hrútleiðinlegur og staðsettur á sjálfvöldum stalli, sem er líka ansi einmanalegt til lengdar. Samfélagsmiðlun er ekki doktorsritgerð heldur samtal þar sem heiðarleiki gagnvart notandanum og gleði er ávallt í fyrirrúmi. Við erum öll manneskjur og fólk er ekki fullkomið. Það er í lagi að vera mannlegur, gera mistök og viðurkenna það. Þeir sem framleiða innihald ganga um leið í þá vinnu að skapa ákveðið andrúmsloft á þeim samfélagsmiðlum sem nýttir eru hverju sinni. Andrúmsloftið þarf að vera bjóðandi, notalegt og þess háttar að þeir sem fylgjast með umræðunni vilji taka þátt og deila efninu í eigin umhverfi. Efnismiðlunin þarf að hvetja til þátttöku og deilingar, því þannig næst árangur en annars ekki.

Segðu sögur sem vekja athygli, sögur sem notendum líkar við og sem þeir vilja deila með eigin tengslaneti. Innihaldsmarkaðssetning er fyrst og fremst leið til að framleiða markvisst sögur um okkar hjartans efni sem vekja athygli og áhuga móttakandans og kveikja tilfinningu fyrir efninu. Þær mega gjarna innihalda skiljanleg skilaboð sem kalla á viðbrögð frá þeim sem tekur við, sem gerir það svo að verkum að viðkomandi smellir á „deilihnappinn“ og flytur boðskapinn áfram. Sögurnar verða sífellt til í nærumhverfinu og kúnstin er að vera galopin fyrir því sem er að gerast, sérstaklega því sem ekki er endilega innan einhvers fyrirfram mótaðs ramma. Það þarf að grípa tækifærið hér og nú og koma frásögninni á Facebook, Instagram, YouTube, Linkedin, Twitter eða þar sem við á. Fyrsta skrefið er að henda hræðslunni við samskipti fyrir róða.

Vinsælustu samfélagsmiðlarnir hafa keppst við að gera myndræna upplifun víðtækari og einfaldari og gæði hennar hafa aukist skref fyrir skref. Ljósmyndir í uppfærslum á Facebook og Twitter, Instagram-myndir eru allt áhrifamiðlar því eins og máltækið segir, mynd segir meira en þúsund orð. Með betra aðgengi að tækjum og tólum eins og snjallsímum sem taka myndir í góðri upplausn (og með mismunandi linsum) þýðir ekkert að setja hvaða mynd sem er á samfélagsmiðilinn. Myndin verður að vera góð! Á Facebook er áhrifaríkast að setja upp fleiri myndir í einu. Gagnvirknin eykst um allt að 1.290% ef settar eru upp fjórar eða fleiri myndir hverju sinni. Þegar myndirnar eru komnar á sinn stað þarf að gjörnýta möguleikann til að skrifa lýsingu, jafnvel með hlekk á heimasíðu, tagga myndir og segja frá því hvar myndirnar eru teknar. Allt eykur þetta líkurnar á að aðrir notendur og leitarvélar finni upplýsingarnar og dreifi þeim áfram.
Myndir geta verið margs konar. Viðburðir og fundir geta orðið þreytandi viðfangsefni til lengdar, en brosandi fólk/börn sem líður vel og svo að sjálfsögðu alls kyns „hvernig á að gera“ myndir geta verið góð leið til að skapa áhugavert efni. Þegar lengra er komið má velta fyrir sér hlutum eins og því að litríkar myndir dreifast fremur en þær sem eru með færri litum og hvaða filterar auka eða minnka líkur á hrifnæmi og dreifingarvilja þeirra sem njóta. Hins vegar verður að gæta þess ef hámarksárangur á að nást, að mismunandi trix og aðferðir gilda fyrir hvern samfélagsmiðil fyrir sig.

„Video is the new text“ – lifandi miðlun og sögur eru áhrifamesta miðlunin, á því leikur enginn vafi. Myndbönd kalla á tvisvar til þrisvar sinnum meiri gagnvirkni frá notandanum en ljósmynd svo það er til mikils að vinna. Hins vegar þarf einnig hér að hafa í huga á hvaða miðli myndbandið dreifist; lengri myndbönd á YouTube, 15 sek. á Instagram og svo framvegis. Facebook hefur aukið samkeppnina við YouTube á undanförnum misserum, en youtube er enn annar stærsti samfélagsmiðill heims og önnur stærsta leitarvélin. Því er góð viðvera á YouTube afar mikilvæg fyrir lifandi miðlun. Svo má tengja allt efnið saman til að hámarka sýnileikann enn frekar.

Með snjallsímann að vopni er hægt að taka upp myndir í 4K. Það er þó auðvelt að verða fótaskortur í framleiðslunni því þó myndbandið sé í góðum gæðum, þá nennir enginn að horfa það ef það er með slæmu eða gölluðu hljóði. Einfaldast og fljótlegast er að læra af þeim sem nýtt hafa lifandi miðlun í áratugi til að segja sögur; sjónvarps- og/eða kvikmyndaiðnaðinum. Einföldustu leiðirnar til að ná árangri eru oftast áhrifamestar hér eins og annars staðar. Einfaldleikann er hægt að sjóða niður í þrjú atriði sem upphaf að verkinu; búðu til áætlun, veldu útlit og haltu þig við skilaboðin í sögunni. Æfingin skapar meistarann. Það er ekki hægt að skemma neitt með því að ýta á takkana og því um að gera að prófa sig áfram. Hver veit hvaða meistaraverk fela sig í röðum íslenskra kennara. Við bíðum spennt eftir að upplifa þau!

Maríanna Friðjónsdóttir