Opnir kynningarfundir um Menntafléttuna

Fjöldi áhugaverðra námskeiða í boði fyrir grunnskólakennara á vegum Menntafléttu – námssamfélaga í skóla- og frístundastarfi. Boðað hefur verið til opinna kynningarfunda á Teams þar sem skólafólk getur kynnt sér hvað verður í boði.
Næsta haust fara af stað fjölbreytt Menntafléttunámskeið fyrir grunnskólakennara. Menntafléttan - námssamfélög í skóla- og frístundastarfi eru opin námskeið, styrkt af ráðuneytinu og því skólum og þátttakendum að kostnaðarlausu veturinn 2021-2022. Höfuðmarkmið Menntafléttu er að styðja við þróun námssamfélaga innan skóla, með samtali um breytta starfshætti í tengslum við ólík viðfangsefni. Námskeiðin ná yfir heilan skólavetur og viðfangsefnin flétta þátttakendur saman við sitt daglega starf. Námskeiðin eru öllum opin, óháð búsetu.
Verkefnastjórar Menntafléttunnar bjóða upp á opna kynningarfundi á TEAMS um Menntafléttuna fyrir grunnskólakennara og starfsfólk grunnskóla.
- Mánudaginn 3. maí kl. 15.00-15.30, hlekkur hér
- Fimmtudaginn 6. maí kl. 15.00-15.30, hlekkur hér
- Mánudaginn 10. maí kl. 15.00-15.30, hlekkur hér
- Mánudaginn 17. maí kl. 15.00-15.30, hlekkur hér
- Fimmtudaginn 20. maí kl. 15.00-15.30, hlekkur hér
Skráning á námskeiðin hefst þann 17. maí, sjá www.menntamidja.is
Námskeið fyrir kennara á yngsta stigi
Námskeið fyrir kennara á miðstigi
- Stærðfræðinám og upplýsingatækni á miðstigi
- Orðaforði, lesskilningur og málnotkun - byggt á forvitni og áhuga nemenda
- Náttúrufræðin í höndum nemenda (mið- og unglingastig) lýsing er væntanleg á www.menntamidja.is
Námskeið fyrir kennara á unglingastigi
- Höfum áhrif: Menntun til sjálfbærni á unglingastigi (7.–10. bekkur - námskeið er opið öllum en list- og verkgreinakennarar eru sérstaklega hvattir til þátttöku)
- Málið okkar allra: Ný sýn í málfræðikennslu (7.–10. bekkur)
- Stærðfræðinám og upplýsingatækni á unglingastigi (8.–10. bekkur)
Námskeið fyrir kennara í 1.–10. bekk
Námskeið fyrir kennara í 1.–10. bekk, náms- og starfsráðgjafa, fagfólk í stoðþjónustu, félagsmiðstöðva- og frístundaheimilisstarfsfólk
Námskeið fyrir kennara í 1.–10. bekk og fagfólk skólabókasafna
- Lestrarsamfélagið: Áhugahvöt og áhrifavaldar / lýsing er væntanleg á www.menntamidja.is
Menntafléttan er samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Kennarasambands Íslands.