Opnað fyrir vetrarbókanir 24. september

Fréttir|18. september 2024

Hægt er að bóka orlofseign fyrir vetrartímabilið 2025 frá klukkan 18.00, þriðjudaginn 24. september. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Það hefur verið venjan að opna fyrir bókanir orlofseigna fyrir vetrartímabilið seinni hlutann í september og teljum við enga ástæðu til að bregða útaf vananum. Vetrartímabilið nær frá 8. janúar til 2. júní 2025 og í boði eru allar eignir Orlofssjóðs KÍ ásamt nokkrum leigueignum.

Hægt verður að byrja að bóka klukkan 18.00, þriðjudaginn 24. september. Fyrirkomulagið er „fyrstur kemur, fyrstur fær“ og skiptir punktastaða því ekki máli. Hægt er að leigja allar eignir punktalaust á virkum dögum. Um helgar eru dregnir frá punktar alls staðar nema á Bifröst.

Stjórn sjóðsins hefur samþykkt að setja opið internet í allar eignir og því hækkar verð lítillega á milli tímabila.

Eignir og leigueignir Orlofssjóðs dreifast um land allt og tilvalið er fyrir þá sem treysta sér í ferðalög á milli svæða í vetrarfærð að nýta sér það sem sjóðurinn býður upp á. Það er allt önnur upplifun að ferðast um landið á veturna og vorin, heldur en yfir hásumartímann.

Eignir Orlofssjóðs KÍ eru í eigu félagsmanna sambandsins og við viljum biðla til þeirra sem þær nýta að skilja vel við. Slæmum skilum hefur fjölgað mikið og veldur það okkur áhyggjum. Gestir eiga að þrífa vel eftir dvöl sína og ganga frá með það fyrir augum að sá félagi sem á næstu leigu, kemur að eigninni nákvæmlega eins og skilið er við hana. Það er leiðinlegt að þurfa að byrja á að hreinsa klósett, taka úr uppþvottavél eða ryksuga undir rúmi við komu. Umsjónarfólk sér um að ganga úr skugga um að allt sé í standi og heilt eftir dvöl og skipta um tuskur. Það sér ekki um þrif.

Við vonum að veturinn verði ánægjulegur og að félagar njóti dvalarinnar í eignum félagsins.

Að lokum er minnt á netfang Orlofssjóðs, orlof@ki.is ef einhverjar spurningar vakna.