Opnað fyrir vetrarbókanir 22. september

Félagsfólk getur bókað orlofshús eða íbúð fyrir vetrartímabilið 2026 frá klukkan sex síðdegis mánudaginn 22. september. Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Orlofssjóður KÍ tekur við bókunum fyrir tímabilið frá 6. janúar til 3. júní 2026 frá og með klukkan 18:00 þann 22. þessa mánaðar.
Fyrirkomulagið er einfalt: fyrstur kemur, fyrstur fær.
Margir hafa beðið eftir opnuninni, enda gefst nú félagsmönnum tækifæri til að tryggja sér gistingu í vetrarfríum, páskafríum og lengdum helgum.
„Eignasafn Orlofssjóðs spannar allt landið og býður upp á fjölbreytta valkosti fyrir félagsmenn. Sérstaklega vinsælar eru eignir á Flúðum, í Reykjavík og á Akureyri, þar sem nýting er ávallt mjög góð allt árið um kring. Það er ánægjulegt að sjá hversu mikill áhugi er á eignunum, og við hvetjum félagsmenn til að tryggja sér dvöl tímanlega," segir Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs.
Linda vill líka benda félagsfólki á að íbúðirnar á Bifröst eru leigðar út punktalaust alla daga vikunnar yfir haust- og vetrartímabilin, sem nýtist vel þeim sem eiga fáa eða enga punkta.