Opnað fyrir vetrarbókanir

Félagsfólk getur bókað orlofshús eða íbúð fyrir vetrartímabilið 2027 frá klukkan sex síðdegis á morgun, þriðjudaginn 22. september. Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Orlofssjóður KÍ tekur við bókunum fyrir tímabilið frá 5. janúar til 2. júní 2027 frá og með klukkan 18:00 á morgun, 22. september.
Fyrirkomulagið er einfalt: fyrstur kemur, fyrstur fær.
Margir hafa beðið eftir opnuninni, enda gefst nú félagsmönnum tækifæri til að tryggja sér gistingu í vetrarfríum, páskafríum og lengdum helgum.
„Eignasafn Orlofssjóðs spannar allt landið og býður upp á fjölbreytta valkosti fyrir félagsmenn. Sérstaklega vinsælar eru eignir á Flúðum, í Reykjavík og á Akureyri, þar sem nýting er ávallt mjög góð allt árið um kring. Það er ánægjulegt að sjá hversu mikill áhugi er á eignunum, og við hvetjum félagsmenn til að tryggja sér dvöl tímanlega," segir Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs.
Linda vill líka benda félagsfólki á að íbúðirnar á Bifröst eru leigðar út punktalaust alla daga vikunnar yfir haust- og vetrartímabilin, sem nýtist vel þeim sem eiga fáa eða enga punkta.