Opnað fyrir umsóknir um námsorlof

Fréttir|11. september 2015

Framhaldsskólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla geta nú sótt um námsorlof fyrir skólaárið 2016-2017. Umsóknir þurfa að berast Rannís eigi síðar en 1. október næstkomandi. 

Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Rannís. Þar má jafnframt kynna sér reglur sjóðsins og algengar spurningar og eru umsækjendur hvattir til að lesa þær vandlega áður en þeir skrifa umsóknina.