Opnað fyrir umsóknir um námsleyfi
Fréttir|6. september 2023

Námsleyfasjóður tekur nú við umsóknum frá grunnskólakennurum og stjórnendum grunnskóla fyrir skólaárið 2024-2025.
Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara og Skólastjórafélagi Íslands sem hafa hug á námsleyfi geta nú sótt um slíkt hjá Námsleyfasjóði. Umsóknir nú eiga við skólaárið 2024 til 2025. Umsóknarfrestur er til og með 10. október næstkomandi.
Á vefsvæði Námsleyfasjóðs segir að stjórn sjóðsins hafi ákveðið að nýta ekki heimild í reglum um að auglýsa úthlutun til forgangsverkefna.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Námsleyfasjóðs.