Opnað fyrir umsóknir í Starfsþróunarsjóð leiðbeinenda í FL um næstu mánaðamót
Opnað verður fyrir umsóknir í Starfsþróunarsjóð leiðbeinenda í Félagi leikskólakennara 1. október næstkomandi. Hægt verður að senda inn umsóknir til 1. nóvember og skulu umsóknir berast í gegnum „Mínar síður“ á vefsíðu Kennarasambandsins.
Starfsþróunarsjóðurinn er ætlaður þeim sem ekki hafa leyfisbréf til kennslu í leikskóla, og hafa lokið BA-, BS- eða B.ed prófi en vilja sækja sér menntun sem veitir leyfisbréf.
Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókninni
- Viðurkennd staðfesting á skólavist sem veitir leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi.
- Staðfesting á að hafa lokið að lágmarki 180 ECTS einingum frá viðurkenndum háskóla og útskrifast með BA, BS eða B.Ed. próf.
- Staðfesting frá leikskólastjóra á starfshlutfalli og lengd félagsaðildar í FL.
Ítarlegar leiðbeiningar um hvernig sótt er um á „Mínum síðum“ munu verða sendar út fljótlega og birtar hér.
Upphæð og fjöldi styrkja ræðst af því fjármagni sem sjóðurinn hefur úr að spila. Ekki er hægt að sjá fyrir upphæð styrkja fyrr en fjöldi gildra umsókna liggur fyrir. Afgreiðsla umsókna fer fram í lok nóvember.
Reglur um Starfsþróunarsjóð leiðbeinenda í FL.