Opnað fyrir umsóknir í Fræðslu- og kynningarsjóð FG
Fréttir|10. ágúst 2018

Fræðslu- og kynningarsjóður FG tekur við umsóknum í gegnum Mínar síður á vef KÍ. Umsóknarfrestur um styrki er til 1. mars og 1. september ár hvert og eru styrkir veittir í kjölfarið; annars vegar í apríl og hins vegar í október.

Fræðslu- og kynningarsjóður FG var settur á laggirnar árið 2018 og eru grunnmarkmið sjóðsins þessi:
- A - Styrkja menntunarátak starfandi félagsmanna FG með leyfisbréf til grunnskólakennslu til að afla sér fyrstu meistaragráðu.
- B - Útgáfu á fræðslu- og kynningarefni um nýja strauma og stefnur í málefnum kennara og efni sem ætlað er að styrkja kennara í starfi.
- C - Styrkja rannsóknir, ritgerðasmíði eða útgáfu á efni sem styrkir og bætir starf og starfsaðstæður kennara, auk þess að hafa jákvæð áhrif á kennarastarfið. Auglýsa skal eftir styrkþegum og verkefnum.
- D - Styrkja og efla starf trúnaðarmanna.
- E - Styrkja almennt fræðslu- og kynningarstarf félagsins og svæðafélaga þess.
Nánari upplýsingar um sjóðinn.