Opnað fyrir tilnefningar til Orðsporsins 2015
Samstarfshópur um Dag leikskólans kallar eftir tilnefningum til Orðsporsins 2015. Dagur leikskólans er sem kunnugt er haldinn hátíðlegur 6. febrúar ár hvert og síðastliðinn tvö ár ár hefur viðurkenningin Orðsporið verið veitt þeim sem þótt hefur skarað fram úr í að efla orðspor leikskólastarfs og eða unnið ötullega í þágu leikskólans.
Að þessu sinni hefur verið ákveðið að Orðsporið 2015 verði veitt sveitarfélagið eða rekstraraðila sem þykir hafa skarað fram úr við að hækka menntunarstig starfsmanna leikskóla og/eða fjölga leikskólakennurum í sínum leikskóla eða leikskólum. Það er enda staðreynd að einungis þriðjungur starfsfólks leikskóla hefur leikskólakennaramenntun.
Allir geta sent tilnefningu til Orðsporsins 2015 og tekið verður á móti tilnefningum frá 5. desember til og með 12. janúar 2015. Hægt er að tilefna hér.
Valnefnd, skipuð fulltrúum Samstarfshóps um Dag leikskólans, fer síðan yfir tilnefningarnar og velur verðlaunahafann.
Þeir sem hafa hlotið Orðsporið eru:
- 2013 Súðavíkurhreppur fyrir að bjóða gjaldfrjálsan leikskóla. Kristín Dýrfjörð og Margrét Pála Ólafsdóttir fyrir að vekja umræðu um málefni leikskólans
- 2014 Okkar mál – þróunarverkefni um að auka samstarf skóla og stofnana í Fellahverfi.
- 2015?
Samstarfshóp um Dag leikskólans skipa fulltrúar Félag stjórnenda leikskóla, Félag leikskólakennara, Samband íslenskra sveitarfélaga, menntamálaráðuneytið og Heimili og skóli – landssamtök foreldra.