Opnað fyrir fyrstu dagsleigurnar í dag

Fréttir|17. mars 2025

Orlofssjóður opnar fyrir fyrstu bókanir í svokallaðar dagsleigur klukkan sex í dag. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Félagsmenn sem eiga 300 punkta eða fleiri geta bókað dagsleigur í orlofshúsum Kennarasambandsins frá klukkan sex í dag, mánudaginn 17. mars.

Með dagsleigu er átt við leigu á húsi í tvær til sjö nætur. 

Munið að reglan er: Fyrstur kemur, fyrstur fær

Fyrirkomulagið verður svona

  • 17. mars kl. 18:00    Félagar sem eiga 300 punkta eða fleiri
  • 18. mars kl. 18:00    Félagar sem eiga 100 punkta eða fleiri
  • 19. mars kl. 18:00    Félagar sem eiga 1 punkt eða fleiri
  • 20. mars kl. 18:00    Félagar sem eiga enga punkta, og félagar í FKE

 

Áttu eftir að staðfesta vikuleiguna?

Félagar sem fengu úthlutaða viku hafa til hádegis í dag, 17. mars, til að staðfesta bókunina með greiðslu. 

 

Fara á Orlofsvefinn