Opnað fyrir bókanir á þriðjudag

Fréttir|9. september 2020

Félagsfólk KÍ getur bókað orlofseignir, fyrir tímabilið janúar til júní 2021, frá og með klukkan 18 næsta þriðjudag. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Orlofssjóður KÍ opnar fyrir bókanir klukkan 18 þriðjudaginn 15. september. Um er að ræða tímabilið 6. janúar til 11. júní 2021. Bókanir fara fram á Orlofsvefnum og gildir reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“.

Sama fyrirkomulag verður á bókunum sumarið 2021 og gilti á liðnu sumri. Eignum í vikuleigu verður úthlutað fyrst en síðan opnað fyrir bókanir flakkara eftir punktastöðu. Nánari upplýsingar um þetta verða sendar út á byrjun næsta árs.

Við minnum einnig á Frímannsafslættina og að hægt er að nálgast samninga og ávísanir á Orlofsvefnum undir Síðan mín. Fyrirspurnir sendist á orlof@ki.is.

 

Viltu framleigja sumarhús eða íbúð?

Orlofssjóður óskar eftir orlofseignum (góðum sumarhúsum eða íbúðum) um land allt til framleigu fyrir sumarið 2021. Leigutímabil er fyrirhugað frá 11./18. júní til 6./20. ágúst, eða í 8 til 10 vikur. Mögulegt er að skoða styttri leigutíma en þó aldrei skemur en fimm til sex vikur. Öllum tilboðum verður svarað.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í tilboði:

  • Lýsing eignar og því sem henni fylgir
  • Ástand eignar og staðsetning, lýsing á nærumhverfi (afþreying o.fl.)
  • Stærð eignar í fermetrum og byggingarár.
  • Herbergjaskipan: stofa og fjöldi svefnherbergja auk áætlaðs fjölda gesta í
    a) rúmum 
    b) kojum
    c) á dýnum
  • Ljósmyndir af eign, bæði innanhúss og utan, sem og af nánasta umhverfi
  • Verðhugmynd; leiguverð á viku
  • Gæludýr: Leyfð / bönnuð

 Tilboð skal senda á orlof@ki.is fyrir 1. nóvember næstkomandi.