Opnað fyrir bókanir á miðvikudag

Fréttir|15. september 2022

Félagsmenn sem hafa áhuga á að leigja orlofshús KÍ, á tímabilinu janúar til júní 2023, geta gert það frá og með klukkan 18:00 miðvikudaginn 21. september næstomandi. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Orlofssjóður KÍ opnar fyrir bókanir á tímabilinu 10. janúar til 9. júní 2023 miðvikudaginn 21. september (klukkan 18:00).

Bókanir fara fram á Orlofsvefnum og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.

 

Orlofssjóður vill einnig minna félagsmenn á eftirfarandi

  • Hægt er að kaupa ferðaávísun til að greiða fyrir gistingu á ýmsum gististöðum innanlands. Orlofssjóður niðurgreiðir ferðaávísanir um 25% að hámarki 12.000 kr á 12 mánaða tímabili. Á Orlofsvefnum er keypt inneign sem er svo nýtt við greiðslu á gististað.
  • Hægt er að kaupa gjafabréf Icelandair fyrir 24.000 kr. eða 27.000 kr., með eða án punktafrádráttar, og gilda þau sem 30.000 kr. upp í flug með Icelandair, bæði innanlands og utan. Bréfin gilda í 5 ár og fást ekki endurgreidd. Félagsmenn skulu kynna sér hvort þessi gjafabréf gildi hjá ferðaskrifstofum áður en þau eru keypt.
  • Hægt er að kaupa gjafabréf í flug til Húsavíkur og Hafnar í Hornafirði með Flugfélaginu Erni. Bréfin gilda fyrir félagsmenn, maka og börn og eitt bréf gildir sem flug aðra leið á þessa áfangastaði.
  • Hægt er að kaupa gjafabréf hjá Úrval Útsýn til að nota upp í pakkaferðir. Félagsmenn skulu kynna sér skilmála ÚÚ áður en bréfin eru keypt.
  • Styrkir vegna göngu- og bátsferða (ekki ferjur) eru að hámarki 7.500 kr./15 punktar. Sótt er um með því að senda afrit af reikningi og greiðslukvittun, kennitölu og númer bankareiknings á orlof@ki.is.
  • Þá eru félagsmenn hvattir til að kynna sér Frímannsafslættina hjá ýmsum fyrir tækjum um allt land.

Leigusamninga og gjafabréf er hægt að nálgast á Orlofsvefnum, undir „Síðan mín“. Fyrirspurnir sendist á orlof@ki.is.