Opinn fundur um námskrár og faglegt sjálfstæði kennara
Kennarasamband Íslands efnir til tveggja opinna funda um stefnu í námskrármálum og faglegt sjálfstæði kennara.
Fyrri fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 14. október í Hofi á Akureyri og sá síðari á Grand Hóteli Reykjavík miðvikudaginn 21. október. Fundirnir standa frá 14 til 16.
Aðalfyrirlesari á fundunum verður dr. Atli Harðarson, lektor við Menntavísindasvið HÍ og fyrrverandi kennari og skólastjórnandi.
Atli mun í fyrri hluta erindis síns fjalla um tæknihyggju í námskrárfræðum sem mótaðist í Bandaríkjunum um og fyrir miðbik síðustu aldar og hefur haft mikil áhrif í Evrópu undanfarin ár – meðal annars í gegnum svokallað Bolognaferli. Áhrif tæknihyggju hafa farið vaxandi hér á landi upp á síðkastið.
Tæknihyggja felur í sér að lögð er áhersla á að skólastarf snúist um markmið sem hægt er að lýsa fyrirfram og staðfesta að nemendur hafi náð. Henni fylgja líkön af af námskrárgerð sem gera ráð fyrir að skólastarf sé skipulagt með hliðsjón af lýsingu á stöðluðum lokaafurðum. Þessi líkön ná utan um hluta af því sem unnið er og vinna þarf í skólum, en aðrir hlutar verða útundan. Að loknum fyrri hluta erindisins verður opnað fyrir umræður.
Minnkandi vald kennara yfir því hvað er kennt
Í síðari hluta erindisins ætlar Atli að fjalla um hvernig umrædd stefna tengist eftirtöldum atriðum:
- viðleitni yfirvalda til að auka afköst og árangur,
- tilraunum til að mæla árangur skólastarf og bera saman menntun einstaklinga og menntunarstig þjóða,
- minnkandi vald kennara yfir því hvað er kennt og hvernig,
- einstaklingshyggju og einstaklingsvæðingu síðustu áratuga og hugmyndum um skóla sem þjónustustofnun fremur en samfélag.
Þá mun Atli einnig fjalla stuttlega um hvaða leiðir eru færar við skipulag skólastarfs aðrar en þær sem miða að fyrirframgefnum námsmarkmiðum sem nemendur eiga að ljúka og ná. Opnað verður fyrir umræður að loknu erindi Atla.
Kennarasambandið hvetur félagsmenn til að sækja fundinn og taka þátt í umræðum um þetta mikilvæga málefni. Þeir sem eiga ekki heimangengt geta fylgst með fundinum í beinni útsendingu á vef Netsamfélagsins. Upptaka af fundinum verður síðan aðgengileg á netinu.
Félagsmenn eru beðnir um að skrá sig hér en þátttökugjald er ekkert.