Opinn fundur um menntamál

Kennarasamband Íslands, í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, boðar til opins fundar með fulltrúum stjórnmálaflokkanna miðvikudaginn 18. október.
Kennarasamband Íslands, í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, boðar til opins fundar með fulltrúum stjórnmálaflokkanna miðvikudaginn 18. október. Boðið er þeim fulltrúum stjórnmálaflokka sem bjóða fram á landsvísu.
Flokkarnir og fulltrúar þeirra eru:
- Björt framtíð – Nichole Leigh Mosty
- Flokkur fólksins – Ólafur Ísleifsson
- Framsóknarflokkurinn – Kjartan Þór Ragnarsson*
- Miðflokkurinn – Kolfinna Jóhannesdóttir
- Píratar – Björn Leví Gunnarsson
- Samfylkingin – Páll Valur Björnsson
- Sjálfstæðisflokkur – Jóhannes Stefánsson
- Vinstrihreyfingin – grænt framboð – Katrín Jakobsdóttir
- Viðreisn – Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Fundurinn fer fram í Skriðu, húsi Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og stendur frá klukkan 16.30 til 18.30. Fundarstjóri verður Aðalbjörn Sigurðsson, útgáfu- og kynningarstjóri Kennarasambands Íslands.
Allir velkomnir en fundurinn verður einnig sendur út á netinu (www.netsamfelag.is).
*Uppfært 18.10. kl. 16.25: Kjartan Þór Ragnarsson kemur í stað Lilju Daggar Alfreðsdóttur.