Opinn efniviður og kynjajafnréttismenntun ungra barna

Fréttir|1. febrúar 2023

Sólveig Björg Pálsdóttir leikskólakennari skrifar um niðurstöður rannsóknar sem hún gerði á kynjajafnréttismenntun í leikskólanum. Sólveig hlaut styrk úr Rannsóknasjóði KÍ.

Kynjajafnréttismenntun ungra barna er mér mjög hugfangið efni. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og þar er hægt er að leggja grunninn að jafnréttismenntun barna sem hægt er að byggja ofan á þegar lengra er komið í skólakerfinu (lög um leikskóla nr. 90/2008; Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2011). Leikefni er aðal námsefni leikskóla og því þótti mér mikilvægt að skoða hvernig það er valið og hvaða viðhorf liggja þar að baki (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2011). Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að skoða leikefni í nokkrum leikskólum út frá kynjafræðilegu sjónarhorni og hins vegar að kanna viðhorf leikskólakennaranna til leiks og leikefnis barnanna.

Hvað var gert?

Valdir voru sex leikskólar af handahófi. Fylgst var með starfi elstu deildarinnar í hverjum skóla fyrir sig í eina til tvær klukkustundir. Deildirnar voru skoðaðar og leikefnið sem þar var að finna sérstaklega athugað. Upplýsingarnar sem fengust með þessu voru notaðar sem umræðugrundvöllur í viðtölum við deildarstjóra deildanna. Viðtölin voru þemagreind og byggjast niðurstöður rannsóknarinnar á viðtölunum sex og vettvangsnótunum.

Opinn efniviður ríkjandi

Í öllum leikskólunum var lögð mikil áhersla á að nota opinn efnivið, svo sem kubba og annan efnivið án fyrir fram gefinna hugmynda um tilgang þess. Leikskólakennararnir lögðu mikla áherslu á að börnin veldu sjálf hvernig þau léku sér, hvaða leikefni þau myndu nota og hvar. Mikil áhersla var lögð á einstaklingsáhuga barnanna og áhersla leikskólanna á að skapa námsumhverfi þar sem börnin hafa val áberandi, miklu meira áberandi en kynjasjónarmið.

Áhugi barna var í brennidepli leikskólastarfsins, sem er mikilvæg sýn á menntun ungra barna

Leikskólakennararnir töldu sig ekki sjá mikinn mun á leikefnisvali barnanna þegar á heildina væri litið en gátu séð mun á leik barnanna eftir kyni. Minnst var á ákveðinn áherslumun í leik barnanna eftir kyni; strákar meira í ofurhetjutengdum leikjum og stúlkur í rólegri leikjum. Öll börnin höfðu jafnan aðgang að leikefninu og því var þessi áherslumunur talinn vera vegna mismunandi áhugasviðs barnanna. Leikskólakennararnir komu með margvísleg dæmi þess þar sem notkun barnanna á sama efnivið væri mismunandi eftir kyni. Kubbar voru oft notaðir sem dæmi enda oftast talað um þá sem afar kynlaust leikefni. Drengir væru mjög flinkir að byggja alls konar ofurhetjur til að leika með og stúlkur væru meira í mýkri leikjum með sama efnivið. Hér var einskær einstaklingsáhugi barnanna talinn vera helsta ástæða þess að munur væri á leik þeirra eða notkun á efniviðnum og ekki væri þörf á að skoða leikumhverfið með kynjasjónarmiðum þar sem að leikefnið og leiksvæðin væru svo opin.

Kynjaðar hugmyndir og áhugi barna

Áhugi barna var í brennidepli leikskólastarfsins, sem er mikilvæg sýn á menntun ungra barna. Það sem kom í ljós í þessari rannsókn var að lítið var unnið að því að skoða starfið markvisst út frá sjónarhorni kynjajafnréttis. Opni efniviðurinn átti að gera það að verkum að leikumhverfi barnanna væri kynhlutlaust.

Það var lítið velt vöngum yfir hvaðan áherslumunurinn á leik barnanna kæmi, jafnvel talinn eðlislægur. Rannsóknir gefa til að herbergi barna og heimaumhverfi þeirra eigi það til að vera afar kynjað og að ung börn geti flokkað leikföng og liti eftir því hvað sé talið vera strákalegt og stelpulegt (MacPhee og Prendergast, 2019; Skočajić o.fl., 2020). Í serbneskri rannsókn Skočajić og félaga (2020) var bent á að börnum er jafnvel refsað í jafningjahóp ef þau fylgja ekki því sem er talið viðeigandi fyrir þeirra kyn. Bent hefur verið á að það sé erfitt verkefni fyrir ung börn að kljást við staðalmyndir samfélagsins án virkrar leiðsagnar kennaranna (Hjelmér, 2020; Skočajić o.fl., 2020). Það er því að mínu mati mikilvægt að velta fyrir sér leikumhverfi barnanna með þetta í huga. Opinn efniviður og opið leikumhverfi geta stuðlað að því að kynjaðar hugmyndir sem börnin koma með inn í leikinn sjáist ekki.

Miðað við niðurstöður þessarar rannsóknar má leiða að því líkum að áhersla skólanna sex á opinn efnivið og verðlausan efnivið og á það að börnin velji frjálst hvernig þau leika sér geti leitt til þess að síður sé horft á starfið út frá kynjafræðilegu sjónarhorni.