Opin námskeið í listkennsludeild
Fréttir|24. júní 2015
Listkennsludeild Listaháskóla Íslands opnar dyr fyrir starfandi lisgreinakennurum og listafólki sem vill sækja sér símenntun. Boðið er upp á fjölbreytt úrval áfanga á meistarastigi. Námskeiðin eru opin öllum með grunn-háskólagráðu í kennslu eða listum. Starfandi listgreinakennarar eru hvattir til að sækja námskeiðin.
Meðal námskeiða sem verða í boði í haust eru:
- Skuggaleikhús
- Leiklist fyrir kennara ungra barna
- Tónlist fyrir kennara ungra barna
- Bókagerð
- Skapandi skrif í skólastofunni
- Rödd, spuni, tjáning
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Listaháskólans.