Opið hús í Vörðuleiti á laugardag

Fréttir|15. janúar 2020

Orlofssjóður festi kaup á hinu nýbyggða fjölbýlishúsi í lok nóvember og hefur síðustu vikur verið unnið að því að gera íbúðirnar tilbúnar til útleigu.

Orlofssjóður býður félagsmönnum KÍ að skoða nýjar orlofsíbúðir við Vörðuleiti næstkomandi laugardag. Orlofssjóður festi kaup á hinu nýbyggða fjölbýlishúsi í lok nóvember og hefur síðustu vikur verið unnið að því að gera íbúðirnar tilbúnar til útleigu. 

Tíu íbúðir eru í hinu nýja húsi Orlofssjóðs; tvær þriggja herbergja íbúðir, sjö tveggja herbergja og ein stúdíóíbúð. Húsið er í nýju hverfi á reit Útvarpshússins við Efstaleiti. Stutt er í þjónustu og má nefna að Kringlan og Borgarleikhúsið eru í göngufæri. 

Þess er skammt að bíða að opnað verði fyrir bókanir í Vörðuleiti og verða félagsmenn upplýstir um leið og það gerist. 

Opið hús í Vörðuleiti 2 verður laugardaginn 18. janúar frá klukkan 13 til 16.