Opið hús í Gefnarborg

Fréttir|27. júní 2023

Í gær 26. júní 2023 var opið hús í leikskólanum Gefnarborg í Garði á Suðurnesjum. Leikskólinn notaði þessa frábæru leið til þess að kynna fyrir áhugasömum þróunarverkefni sem unnið hefur verið að s.l. þrjú ár. Leikskólinn hefur verið stjórnandi verkefna bæði á vegum Erasmus+ KA2 og eTwinning. Verkefnið heitir á íslensku Skynreiða með inngildingu að leiðarlajósi og á ensku Inclusion through sensory intergration.

Í gær 26. júní 2023 var opið hús í leikskólanum Gefnarborg í Garði á Suðurnesjum. Leikskólinn notaði þessa frábæru leið til þess að kynna fyrir áhugasömum þróunarverkefni sem unnið hefur verið að s.l. þrjú ár. Leikskólinn hefur verið stjórnandi verkefna bæði á vegum Erasmus+ KA2 og eTwinning. Verkefnið heitir á íslensku Skynreiða með inngildingu að leiðarlajósi og á ensku Inclusion through sensory intergration. 

Gestum var bæði boðið upp á nokkur erindi í sal og svo upplifun inni á deildum leikskólans. Öll erindin voru afar áhugaverð og ber fagmennsku þeirra í Gefnarborg vitni. Sagt var frá samstarfinu við fimm leikskóla í jafnmörgum löndum. Framgangi verkefnisins og hvaða leiðir voru farnar í löndunum, eðlilega voru þær fjölbreyttar enda umhverfi leikskólanna ólíkt. 
Það var áhugavert að sjá hvernig leikskólakennararnir höfðu útbúið eigin matstæki til þess að meta árangur einstaka þátta starfsins. Uppeldisfræðilegar skráningar voru notaðar og þær svo ígrundaðar í fámennum hópum. Sagt var frá því hvernig leitað var lausna ef þurfa þótti, ef leikur barnanna og upplifun var ekki eins og best var á kosið. Sem dæmi þá þurfti að fara með bíldekk út fyrir leikskólalóðina vegna þess að hætta var á að dekkin lentu á yngri börnunum þegar þeim var rúllað. Það voru svo mörg áhugaverð smáatriði sem leitað var lausna við og svo áhugavert að hlusta á hversu faglega haldið var á hlutum í alla staði. 

Greinilegt er að leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólans hafa eflst mikið faglega við það að taka þátt í þessu áhugaverða verkefni. Þá má ekki gleyma því að einn liður verkefnisins var að efla námssamfélag leikskólans með þáttöku foreldra. Sagt var frá því hvernig foreldrar tóku þátt í að gera stöðvarvinnu eftirminnilega fyrir þá sjálfa, börnin og starfsfólkið. Fjallað var um útinámið og hvernig lögð er áhersla á skynjun barnanna í útiveru og vettvangsferðum.

Þá var einnig þátttaka Veca heimsóknarhunds mjög athyglisverð. Börnin hafa Vecu með sér í göngu um nágrennið, þau læra að umgangast hana, skynja líðan hennar og bera umhyggju fyrir henni. Að sögn leikskólakennara örva hundar flest skynfæri barna.

Í verkefninu var lögð áhersla á læsistengda skynjun. Þannig var reynt að vekja áhuga barnanna á lestri og bókin/sagan nýtt betur. Þegar unnið er með læsistengda skynjun er hugstormað um barnabókina út frá möguleikum þess að vinna með skynreiðu. Leikskólakennararnir fundu leiðir til þess að börnin fengju að öðlast reynslu, fá að rannsaka og upplifa söguþráðinn þannig að þau skilja hann betur. Þannig verða börnin meiri þátttakendur, virkari og hafa frumkvæði við að skilja innihald sögunnar. 
Inni á einni deildinni var búið að útbúa ævintýraheim sögunnar um Grepikló. Þátttakendum var gefið tækifæri á að uppifa í gegnum þennan heim það sem börnin höfðu verið að upplifa s.l. ár í leikskólanum. Hægt var að prófa verkfærin þeirra, finna lykt, bragð, snerta o.s.frv. 

Það er óhætt að hvetja alla leikskólakennara til þess að skoða vel verkefnið þeirra í Gefnarborg. Greinilegt og áþreifanlegt er hversu mikið þátttaka í verkefnum sem þessum hefur á fagmennsku og ánægju leikskólakennara í starfi. Það var unun að hlusta á þá kynna alla þætti verkefnisins. 

Eftir upplifun, faglega umræðu og samveru með jafningjum fórum við út og þar er margt áhugavert að sjá. Við skoðuðum m.a. kofa sem er á lóðinni og eins og er þá geta börnin leitað þangað til þess að gera rannsóknir ýmiskonar og leika með áhugavert leikefni. Þá er einnig í garðinum lögð áhersla á skynjun og upplifun barnanna. Þau geta gengið eftir braut berfætt og skynjað mismunandi áferð. 

Við tókum alveg helling af myndum sem segja auðvitað mun meira en nokkur orð. Leikskólakennararnir útbjuggu veggspjöld til þess að vekja athygli gesta á þeim leiðum sem farnar voru og tókum við myndir af þeim og hvetjum alla til þess að lesa þau. 

Takk kærlega fyrir sérlega ánægjulegt síðdegi kæra starfsfólk í Gefnarborg. Takk kærlega Anna Sofía Walhström fyrir að leggja ávallt áherslu á að miðla til okkar hinna því frábæra leikskólastarfi sem þið standið fyrir í Gefnarborg. 

Hér er hægt að skoða allar myndirnar sem við tókum. 

Hér er krækja á vefsíðu Inclusion through sensory intergration og hvetjum við öll til að kynna sér einnig vel það sem samstarfsskólar leikskólans voru að vinna að. Mjög áhugavert.

Hér er dæmi um sögugerð barnanna, en margar slíkar bækur urðu til í vetur. 

Hér er krækja á Rannis sem heldur utan um styrki til Evrópusamvinnu leikskóla. Þar er hægt að fá allar upplýsingar um möguleika til samstarfsverkefna og tækifæri til starfsþróunar.