Opið hús hjá KÍ að lokinni kröfugöngu og útifundi

Fréttir|30. apríl 2024

Kennarasambandið hvetur félagsmenn til að fjölmenna í kröfugöngur sem fara fram víða um landið. Þá verður opið hús hjá Kennarasambandinu milli 15 og 17. Boðið verður upp á vöfflukaffi.

Sterk hreyfing – sterkt samfélag er yfirskrift baráttudags verkalýðsins þetta árið.

Kennarasambandið hvetur félagsfólk til að taka þátt í kröfugöngum, útifundum og viðburðum sem verða í Reykjavík og víða um land.

  • Kennarasambandið opnar dyrnar að skrifstofunni við Borgartún 30. Félagsfólk er velkomið að kíkja í heimsókn og þiggja vöfflukaffi og veitingar.
  • Vöfflukaffið hefst klukkan 15 og stendur til klukkan 17.

„Styrkur verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi hefur í gegnum tíðina gert okkur kleift að byggja upp norrænt velferðarsamfélag og tryggt launafólki réttindi sem okkur þykir sjálfsögð í dag svo sem sumarorlof, greiðslur í fæðingarorlofi og veikindarétt. Þann 1. maí stöndum við vörð um og heiðrum framlag launafólks, fyrr og nú, í öllum geirum og lögum samfélagsins.

Dagurinn er mikilvæg áminning um áframhaldandi þörf fyrir samstöðu og sameiginlegan slagkraft vinnandi fólks til að skapa réttlátari og sanngjarnari framtíð fyrir öll,“ segir í kynningu samstarfsnefndar um 1. maí.

Dagskráin í Reykjavík hljóðar svo

  • 13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti
  • 13:30 Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.
  • 14:00 Útifundur hefst
    • Fundarstjóri er Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar.
    • Ræðu flytja Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis.
    • Bríet og Úlfur Úlfur munu taka lagið og í lok fundarins syngur fundarfólk og tónlistarfólk lnternationallin og Maístjörnuna.
  • 15.00 Vöfflukaffi í Borgartúni 30

 

Lúðrasveit verkalýðsins mun leika í kröfugöngunni í Reykjavík en auk þess munu félagar úr sveitinni koma í Borgartúnið og leika nokkur lög.