Opið fyrir umsóknir um þróunarstyrki fyrir FL og FSL

Fréttir|19. ágúst 2024

Hægt er að sækja um þróunarstyrki úr Vísindasjóði FL/FSL til 15. september nk.

Stjórn Vísindasjóðs FL/FSL vekur athygli á að opið er fyrir umsóknir um þróunarstyrki úr sjóðnum.

Umsóknum um þróunarstyrki (C deild) þarf að skila í gegnum Mínar síður á vef KÍ í síðasta lagi sunnudaginn 15. september nk.

Þróunarstyrkir eru veittir til:

  • Þróunar- og rannsóknarstarfa. Styrktur er útlagður kostnaður styrkþega, þó ekki skólagjöld né launakostnaður umsækjanda.
  • Einstakra félagsmanna eða hópa félagsmanna, faghópa og nefnda innan FL og FSL til að halda námskeið og ráðstefnur fyrir félagsmenn. Skólar eða launagreiðendur eiga ekki rétt á þessum styrk.

Sjá nánar hér undir flipanum þróunarstyrkir eða í reglum sjóðsins.

Nánari upplýsingar veitir starfsmaður sjóðsins, Elísabet Anna Vignir, í tölvupósti: elisabet@ki.is eða í síma 595 1111.