Opið fyrir umsóknir um kennaraskipti

Starfandi grunnskólakennara geta nú sótt um tíu daga kennaraskipti.
Starfandi grunnskólakennarar geta nú sótt um tíu daga kennaraskipti eftir að samstarf milli Félags grunnskólakennara og Kennarasamtaka Alberta-ríkis í Kanada var komið á. Með samstarfinu gefst kennurum einstakt tækifæri til alþjóðlegrar starfsþróunar, læra og bera saman ólíkar aðferðir og mismunandi nálgun á starfið milli skólakerfa. Búið er að opna fyrir umsóknir en umsóknarfrestur er til 25. október 2019. Sótt er um kennaraskipti hjá Hjördísi Albertsdóttur, varafomanni Félags grunnskólakennara, í gegnum netfangið hjordis@ki.is. Hjördís veitir allar frekari upplýsingar.
Umsækjendur þurfa að vera félagsmenn í Félagi grunnskólakennara með minnst fimm ára starfreynslu sem slíkir. Geta skilið og tjáð sig á ensku, búið yfir sveigjanleika, aðlögunarhæfni, samskiptahæfni og vera tilbúnir að starfa sem fulltrúar Íslands og íslensks skólakerfis á meðan á skiptunum stendur. Auk þess eru æskilegir kostir, frumkvæði, útsjónasemi og samfélagsleg þátttaka í heimabyggð.
Gisting á heimilum samstarfsfélaga
Kennari sem valinn verður í kennaraskipti fer í tíu daga í júní til Alberta. Íslenski kennarinn býr inni á heimili kandadíska samstarfsmannsins og fylgir honum til vinnu (e. shadowing). Tíu daga í mars/apríl kemur kanadískur kennari sem býr þá hjá íslenska kennaranum. Reynt verður að stíla inn á starfs- vetrarfrísdaga skiptikennarans í takt við skóladagatal mótttökukennarans. Kennari greiðir sjálfur ferðakostnað en getur sótt um styrk úr Vonarsjóði FG og SÍ samkvæmt gildandi reglum.
Pörun íslenskra og kanadískra kennara er byggð á umsóknum, þar sem horft verður til skólagerðar, áhuga og áherslu í verkefnum, kennslu og aðferðum, svo sem fagreinar, nám án aðgreiningar, fámennir/fjölmennir skólar og hvað annað sem umsækjanda dettur í hug að nefna eða óska eftir.